Fyrsta skóflustungan að nýjum íbúðum í Hraunbæ

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Í dag var tekin skóflustunga að íbúðum Bjargs í Hraunbæ 153-163. Félagið byggir 99 íbúðir en Félagsbústaðir munu eiga og leigja út 20% íbúða í húsunum á móti Bjargi íbúðafélagi. 

Íbúðirnar eru í fjórum húsum sem eru tvær til fimm hæðir. Afhendingar og upphaf leigu eru á þremur ólíkum dagsetningum, sú fyrsta áætluð þann 1. nóvember 2020 og sú síðasta þann 1. mars 2021. Í boði eru 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir. Þess má geta að gæludýraíbúðir verða í hluta íbúða á jarðhæðum húsanna.

Íbúðir Bjargs íbúðafélags eru fyrir fjölskyldur og einstaklinga á vinnumarkaði sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum og sem hafa verið fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB sl. 24 mánuði miðað við úthlutun. Til að eiga möguleika á úthlutun er nauðsynlegt að vera skráður á biðlista hjá Félagsbústöðum eða vera félagi í Bjargi.

Arkþing arkitektar sjá um hönnun í verkefninu og Ferill verkfræðistofa fer með verkfræðihönnun.

Heimasíða Bjargs