Fyrirhugað verkfall þriðjudaginn 11. febrúar til fimmtudagsins 13. febrúar

Atvinnumál

""

Fyrirhugað verkfall félagsmanna verkalýðsfélagsins Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg hefst kl 12:30 þriðjudaginn 11. febrúar og lýkur á miðnætti fimmtudaginn 13. febrúar.

Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir munu standa yfir í tvo og hálfan sólarhring að öllu óbreyttu og hafa áhrif á rúmlega helming leikskólabarna í borginni eða um 3.500 börn. Verkfallið hefur einnig áhrif á 1.650 notendur velferðarþjónustu borgarinnar auk þess sem sorphirða frestast í þeim hverfum þar sem tæming á að fara fram samkvæmt sorphirðudagatali.

Um 1.850 manns í Eflingu starfa hjá borginni á um 129 starfsstöðvum.

Mest verða áhrif verkfallsaðgerða Eflingarfólks á leikskólana auk matarþjónustu í grunnskólum. Þau börn sem fá vistun í leikskólum verður skipt upp í hópa og verða ýmist heima hálfa eða heila daga. Fyrirséð er að matarþjónusta í einhverjum grunnskólum borgarinnar raskast og þurfa nemendur þar að koma með nesti í skólann. 

Velferðarsvið hefur fengið undanþágur frá verkfallsaðgerðum fyrir starfsfólk Eflingar sem sinnir viðkvæmustu þjónustunni er snýr að umönnun fatlaðs fólks, barna, aldraðra á hjúkrunarheimilum og í heimahúsum, barna og fólks sem þarf á neyðarþjónustu að halda í gistiskýlum. Eftir því sem verkfallstíminn lengist mun það hafa meiri áhrif á þá sem njóta velferðarþjónustu frá borginni. Þrif á heimilum fatlaðs fólks og aldraðra falla niður, sömuleiðis aðstoð við böðun. Ekki verður hægt að kaupa máltíðir á félagsmiðstöðvum og þá verður dagdvöl aldraðs fólks í Þorraseli lokuð á meðan verkfalli stendur.

Hjá Sorphirðunni frestast þjónusta en að auki er vetrarþjónustu eins og hálkuvörnum og snjóhreinsun ekki sinnt á meðan verkfall stendur yfir. Þá er ekki hreinsað í kringum grenndarstöðvar og ruslastampar ekki tæmdir.

Foreldrar/forráðamenn greiða ekki leikskólagjöld fyrir þá daga sem verkfall stendur yfir og ekki heldur fyrir máltíðir sem falla niður í grunnskólum.

Ef ekki nást samningar á milli borgarinnar og Eflingar nú í vikunni hefur verkalýðsfélagið Efling boðað til allsherjarverkfalls næstkomandi mánudag17. febrúar.