Fríða Skart hlýtur Njarðarskjöldinn 2017

Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti hvatningarverðlaunin Njarðarskjöld og Freyjusóma við hátíðlega athöfn í Höfða síðdegis í dag. Um er að ræða hvatningarverðlaun þar sem útnefnd er ferðamannaverslun ársins og  er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára.

Verslunin Fríða Skart hlýtur Njarðarskjöldinn 2017 fyrir fallega verslun sem einkennist af hlýleika og fagmennsku. Boðið er upp á úrval skartgripa þar sem falleg og nútímaleg hönnun nýtur sín. Fríða Skart er lítið fjölskyldufyrirtæki við Skólavörðustíg, sem hjónin Fríða J. Jónsdóttir og Auðunn G. Árnason reka. Fríða útskrifaðist sem gullsmiður 1992 og hefur starfað við fagið allar götur síðan. Þau opnuðu eigin verslun í Hafnarfirði 2007 en fluttu verslun sína árið 2015 á Skólavörðustíg 18, í hjarta miðbæjar Reykjavíkur.

Horft er  til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefs og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig skoðaðir sérstaklega svo sem þjónustulund, opnunartími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, lýsing, tungumálakunnátta starfsfólks og þekking á söluvörunum.

Njörður, sem skjöldurinn er kenndur við var frjósemisguð en síðar guð sæfarenda og sagður fésæll mjög. Sæfarendur þess tíma stunduðu gjarnan kaupskap og því við hæfi að kenna árleg hvatningarverðlaun til ferðamannaverslunar við guð siglinga og viðskipta.

Verslunin Tulipop hlýtur Freyjusómann 2017

Freyjusómi er veittur þeirri verslun sem sem þykir koma með hvað ferskastan andblæ í verslunarrekstur á ferðamannamarkaði í borginni fyrir árið 2017.

Verslunin Tulipop fær Freyjusómann í ár fyrir skemmtilega verslun þar sem ævintýrið grípur gesti um leið og labbað er inn. Verslunin er stílhrein, litrík  og hefur breytt vöruúrval þar sem fígúrurnar á eyjunni Tulipop finnast í hinum ýmsu hlutverkum.

Tulipop hönnunarfyrirtækið var stofnað 2010 af tveimur vinkonum, Signýju Kolbeinsdóttur og Helgu Árnadóttur, með það markmið að búa til skapandi og fallega vörulínu fyrir börn á öllum aldri. Signý er hönnuðurinn á bak við veröldina og Helga stýrir viðskiptahlið fyrirtækisins. Tulipop vörulínan er í dag seld í fjölda verslana á Íslandi auk þess að vera til sölu í 8 löndum utan Íslands. Allar vörur er jafnframt hægt að kaupa í vefverslun Tulipop.

Að hvatningarverðlaununum standa Reykjavíkurborg, Miðborgin okkar, Félag atvinnurekenda, Samtök verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Íslandi.