Fráveitan undir Pósthússtræti við Tryggvagötu tengd

Samgöngur

""

Nú er lag fyrir Veitur að tengja fráveituna sem liggur undir Pósthússtræti við Tryggvagötu. Tengt verður við brunn sem er staðsettur við austurhorn dreifistöðvarinnar í Pósthússtræti, skammt frá Bæjarins Beztu.

Gönguleiðir verða greiðar á svæðinu á meðan framkvæmdum stendur en loka þarf fyrir bílaumferð frá Pósthússtræti að Tryggvagötu og lokað fyrir aðra akrein fyrir framan Hafnarhúsið, Tryggvagötu 17, nema fyrir vöruflutninga, neyðarbíla og vinnuvélar. Framkvæmdin hefst 21. september og mun standa yfir í mánuð.

Veitur vinna að því markvisst að aðgreina skólp og regnvatn í miðborginni og hafa fundið og valið leiðir til að koma regnvatni frá vatnasvæði Tjarnarinnar og Kvosar til sjávar. Við hönnun á nýju skólplögninni á þessu svæði var ekki hægt að tengja hana með góðum hætti til framtíðar nema með því að fara inn í brunn við dreifistöðina við hlið Bæjarins Beztu.

Framkvæmdir við endurnýjun Tryggvagötu

Um þessar mundir standa yfir framkvæmdir við endurnýjun Tryggvagötu. Þegar það kom að því að grafa við verkmörk við Tryggvagötu - Pósthússtræti kom í ljós að steinbryggjan sem grafin var upp náði of langt til suðurs. Núverandi lögn var þannig lögð að ómögulegt var að ná tengingu við hana Tryggvagötu-megin við vegginn og þar að auki hefði hún lent í árekstri við nýju regnvatnslögnina. Þar með varð óhjákvæmilegt að fara í þessa aðgerð núna. Einnig er nauðsynlegt að taka tillit til neðanjarðarveggjarins og fornleifa handan við hann og hanna lagnirnar í gegnum hann í fullu samráði við Minjastofnun.

Þessi aðgerð er mikið þarfaþing en hún var á fimm ára áætlun Veitna. Það hentar sérlega vel að ráðast í hana núna og ætti hún að ganga greiðlega fyrir sig. 

Umferð

Þessi aðgerð er nú í kynningu hjá hagsmunaaðilum á svæðinu og svæðið verður skiltað skilmerkilega. Engin vandkvæði verða á vörumóttöku á svæðinu. Tryggvagata við gatnamót Lækjargötu verður ekki lokuð heldur verður þessi hluti botngata og munu vöruflutningar eiga greiða leið þar.

Akstur austur Tryggvagötu, austan gatnamóta við Grófina, verður óheimilaður meðan framkvæmdum stendur nema fyrir neyðarbíla, vinnuvélar og vöruflutninga.

Akstursstefnu Hafnarstrætis og Naustanna verður snúið við meðan á þessum aðgerðum stendur. Lokað verður á bílaumferð um Pósthússtræti milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu, en þess í stað beint um Hafnarstræti að Naustunum (þar sem akstursstefnum verður snúið við).

Áfram verður tvístefna á Grófinni milli Vesturgötu og Tryggvagötu, en norðan Tryggvagötu er tvístefna tímabundið meðan framkvæmdum stendur. Gert er ráð fyrir að bílaumferð sem á erindi í Kvosina komi úr suðri; aki Lækjargötu, Skólabrú og Pósthússtræti eða Skólabrú, Vonarstræti og Aðalstræti eftir því sem við á. 

Veitur og Reykjavíkurborg. 10.9.2020.

Tenglar

RVK: Um Tryggvagötu framkvæmd 

Veitur: upplýsingar um framkvæmd

Kort sem fylgir frétt