Framsýni, sköpun og hagnýtni í meistaraverkefnum

Skóli og frístund

""

Árlegar viðurkenningar fyrir meistaraverkefni í leikskólakennara-, grunnskólakennara- og tómstundafræðum voru í fyrsta sinn veittar við hátíðlega athöfn í safni Sigurjóns Ólafssonar fimmtudaginn 25. október.

Verkefnin eru unnin á vettvangi skóla- og frístundastarfs Reykjavíkurborgar og hafa hagnýtt gildi fyrir framþróun menntunar í borginni.

Markmið þessara verðlauna er að auka hagnýtingu rannsókna í fagstarfi með börnum og unglingum í borginni, vekja athygli á skóla- og frístundastarfi í borginni og hvetja meistaranema til að gera Reykjavík að vettvangi rannsókna, náms og starfs.

Seinna í vetur verður efnt  til kynninga á verðlaunaverkefnum fyrir stjórnendur og starfsfólk skóla- og frístundasviðs.

Tólf nemendur fá árlega viðurkenningu fyrir slík verkefni og eru verðlaunin að upphæð 250.000 krónur. Í ár voru tíu verkefni voru frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, eitt frá Listaháskólanum, listkennsludeild og eitt frá menntasviði háskólans í Warwick á Englandi.

Fjögurra manna dómnefnd, skipuð sérfræðingum í starfi leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs fór yfir umsóknir og valdi tólf verðlaunaverkefni þessa árs.

Eftirfarandi verkefni hljóta viðurkenningu skóla- og frístundaráðs haustið 2018;

Bjarni Þórðarson – Vinabönd. Þróunarverkefni um námskeið í vináttuþjálfun fyrir unglinga, Íþrótta. Tómstunda- og þroskaþjálfadeild HÍ.

Diljá Barkardóttir - Nám og kennsla um kynheilbrigði á unglingastigi séð frá sjónarhóli kennara. Kennaradeild HÍ.

Guðbjörg Lóa Ólafsdóttir - „Milli steins og sleggju“. Hindranir sem standa í vegi fyrir fullri þátttöku allra nemenda í efstu bekkjum grunnskóla að mati kennara. Uppeldis- og menntunarfræðideild HÍ.

Hákon Sæberg Björnsson - „Dagurinn líður ótrúlega hratt og ég er alltaf komin strax heim“ Starfendarannsókn á notkun kennsluaðferðarinnar sérfræðingskápan þar sem nám nemenda fer fram í hlutverki. Kennaradeild HÍ

Katrín Pálsdóttir - Faglegt lærdómssamfélag milli leik- og grunnskólakennara í samreknum skólum. Kennaradeild HÍ

Kriselle Lou Suson Jónsdóttir - Tungumálafjölbreytni hjá börnum á Íslandi: Tungumálastefna fjölskyldu þeirra og íslensk hljóðkerfisvitund. Kennaradeild HÍ.

Kristín Þóra Guðbjartsdóttir - SKYNJAÐU, UPPLIFÐU, NJÓTTU - Miðlun menningararfs og menning hversdagsins. Listkennsludeild LHÍ.

Linda Rós Jóhannsdóttir - Lítum lengra .Sýn leikskólabarna á hlutverk leikskólakennara sem skrá athafnir þeirra. Kennaradeild HÍ.

Ómar Örn Magnússon - Self-reported honesty and measured trust. An experiment in comparing head teachers´ self-reported honesty and trust as measured in job satisfaction survey in compulsory schools in Reykjavík, Iceland. University of Warwick, Centre for Education Studies.

Sigurbaldur Frímannsson - „Börnin ráða sjálf ferðinni“.  Reynsla leikskólakennara af opnum efnivið. Kennaradeild HÍ.

Sólveig Edda Ingvarsdóttir -„Við erum í forréttindahverfi“. Starfsaðstæður og faglegt sjálfstæði kennara í grónum millistéttarhverfum. Uppeldis- og menntunarfræðideild HÍ.

Tanya Helgason - „Hvernig tengist þetta stærðfræði?“.  Stærðfræðikennsla í fjölmenningarbekk. Kennaradeild HÍ