Framlengdur umsóknarfrestur í sumaropinn leikskóla

Covid-19 Skóli og frístund

""

Vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru í þjóðfélaginu vegna Covid19, hefur verið ákveðið að framlengja umsóknarfrest til að sækja um í tilraunaverkefnið um sumaropnun leikskóla.

Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2020. Hægt er að fá umsóknareyðublað hjá leikskólastjóra í hverjum skóla. 
Sjá einnig frétt um aukinn sveigjanleiki fyrir foreldra á töku orlofsdaga í sumar, með sumaropnun eins leikskóla í hverju hverfi frá fyrstu viku í júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Alls verða sex leikskólar opnir í allt sumar, líkt og síðastliðið sumar.