Framkvæmdum við Geirsgötu lýkur í haust

Framkvæmdir Samgöngur

""

Framkvæmdum við Geirsgötu og gatnamót við Lækjargötu og Kalkofnsveg miðar vel áfram. Nú er búið að hleypa umferð á allar fjórar akreinar Kalkofnsvegar, auk þess sem ný umferðarljós á gatnamótunum hafa verið virkjuð.

Umferðin gengur betur fyrir sig, en verður þó áfram hæg um miðborgina á þessu svæði einkum hjá þeim sem eiga leið um Geirsgötu til austurs. Þar er enn aðeins ein akrein, en það stendur til bóta. „Við byrjum á næstu dögum að ganga frá dúk, snjóbræðslu og gangstéttum sunnan við Geirsgötu. Þeirri vinnu á að ljúka í ágúst og þá verður hægt að opna báðar akreinar Geirsgötunnar til austurs,“ segir Þór Gunnarsson verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar.

Lækjargatan milli Hverfisgötu og Geirsgötu verður hins vegar áfram ein akrein í hvora átt fram eftir hausti. „Við förum fljótlega í að endurgera kaflann sem nú er lokaður og að því verki loknu færum við umferðina yfir, en þurfum þá að endurgera akreinarnar tvær sem nú eru notaðar,“ upplýsir Þór.

Í tengslum við breytt umferðarskipulaga voru merkingar á götum og leiðaskilti yfirfarin til að tryggja öryggi vegfarenda. Rétt er að minna á hraðatakmarkanir við framkvæmdasvæðið er 30 km.

Tengt efni: