Framkvæmdir hefjast við 155 leiguíbúðir Bjargs

Framkvæmdir Skipulagsmál

""

Fyrsta skóflustungan að 155 nýjum leiguíbúðum sem Bjarg íbúðafélag mun byggja var tekin í dag við Móaveg í Spönginni í Reykjavík. Íbúðirnar eru ætlaðar tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum.

Um er að ræða fyrsta byggingaverkefni Bjargs en félagið áformar umfangsmiklar framkvæmdir á næstu misserum. Reiknað er með að um 450 íbúðir verði komnar í byggingu hjá félaginu í lok árs þessa árs og rúmlega 1.000 til viðbótar á næstu þremur til fjórum árum. Íbúðir í fyrsta áfanga verða meðal annars í Reykjavík, á Akranesi og Akureyri. Þá á félagið í viðræðum við sveitafélög víðar á landinu. Næstu byggingarframkvæmdir, á eftir Móavegi, hefjast svo strax í apríl við Urðarbrunn í Úlfarsársdal en þar verða byggðar 83 íbúðir. Reiknað er með að fyrstu íbúðirnar við Móaveg verði afhentar í júní 2019 og fyrstu íbúðirnar í Úlfarsársdal skömmu síðar.

Hagsýni, skynsemi og gæði eru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna til að halda leiguverði lágu og er þar meðal annars horft til fermetrafjölda. Íbúðir eru því ekki stórar, um verður að ræða 45 fermetra tveggja herbergja íbúðir, 70 fermetra þriggja herbergja íbúðir, 85 fermetra fjögurra herbergja íbúðir og 100 fermetra fimm herbergja íbúðir.

Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Íbúðir félagsins verða því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn.

Opnað verður fyrir skráningu á biðlista vegna íbúðanna á heimasíðu Bjargs í apríl.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs, Gylfi Arnbjörnsson, stjórnarformaður Bjargs og forseti ASÍ og Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB voru meðal þeirra sem tóku skóflustunguna í dag.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri: ,,Samstarf um byggingu þúsund leiguíbúða á viðráðanlegu verði með verkalýðshreyfingunni í gegnum Bjarg er gríðarlega mikilvægt, fyrir framtíðarleigjendur, borgina og húsnæðismarkaðinn. Það vill gleymast að þetta eru jafnmargar íbúðir og í síðasta stóra uppbyggingarátaki verkalýðshreyfingarinnar og borgarinnar í Breiðholti. Munurinn er sá að nú dreifast þessar lóðir um alla borg og við gerum ráð fyrir að byggingartíminn verði styttri. Það er stór dagur að hefjast handa við 155 fyrstu íbúðirnar hér í Grafarvogi.“

Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs: „Við hjá Bjargi fögnum þessum mikilvæga áfanga. Næstu skóflustungur bíða okkar handan hornsins og krefjandi verkefni framundan hjá félaginu.“

Gylfi Arnbjörnsson, stjórnarformaður Bjargs og forseti ASÍ: „Það sem er að gerast hér í dag er bara byrjunin á gríðarstóru verkefni. Íbúðafélagið Bjarg mun hefja byggingu og hönnun 600 íbúða á þessu ári og alls klára um 1.500 íbúðir á næstu fjórum árum. Þetta er mikilvægt átak í húsnæðismálum þeirra tekjulægstu og mun að auki stuðla að lækkun leiguverðs á almennum markaði með því að draga úr eftirspurn. ASÍ er stolt af því að hafa komið þessu verkefni af stað.”

Elín Björg Jónsdóttir, stjórnarmaður í Bjargi og formaður BSRB: „Í dag fögnum við stórum áfanga þegar framkvæmdir við fyrstu íbúðir Bjargs af mörgum eru að hefjast. Það er gleðilegt að sjá samtakamátt verkalýðshreyfingarinnar virkjaðan til að taka á brýnum vanda á húsnæðismarkaði, vanda sem margir okkar félagar þekkja allt of vel. Við þurfum að halda vel á spöðunum svo uppbyggingin verði hröð og sem flestir fái öruggt þak yfir höfuðið sem fyrst.“

Bjarg er húsnæðissjálfseignastofnun, stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða leiguheimili að danskri fyrirmynd sem standa munu til boða þeim félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ og BSRB sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum, skilgreindum í lögum um almennar íbúðir.

Íslenskir aðalverktakar munu sjá um byggingu fjölbýlishúsanna í Spönginni, Verkfræðistofan Mannvit sér um verkfræðihönnun og arkitekt er Yrki arkitektar.