Frakkastígur hefur forgang á Skúlagötu

Samgöngur

""

Forgangi bílaumferðar á gatnamótum Frakkastígs og Skúlagötu hefur verið breytt. Umferð eftir Skúlagötu víkur fyrir umferð um Frakkastíg.

Vegfarendur eru  beðnir um að sýna aðgát þar til allir vegfarendur hafa náð að venjast þessari breytingu. 

Breytingarnar eru gerðar í framhaldi af nýjum ljósastýrðum gatnamótum Frakkastígs og Sæbrautar, en þau voru tekin í notkun í haust. Með tilkomu nýju gatnamótanna kom betri gönguleið frá Frakkastíg að Sólfarinu, auk þess sem götulýsing var bætt til mikilla muna.

Nánari upplýsingar:

Framkvæmdasjá: Frakkastígur og Sæbraut, gatnagerð, lagnir og umferðarljós