Fossvogsbrúin í hönnunarsamkeppni

Samgöngur Umhverfi

""

Samkeppni um hönnun brúar yfir Fossvog verður auglýst á nýju ári, en Vegagerðin vinnur að undirbúningi tveggja þrepa hönnunarsamkeppni í samvinnu við Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ.

Í frétt á vef Vegagerðarinnar er ítrekað að nafnleyndar verði gætt á báðum þrepum og þar er einnig vísað á forauglýsingu vegna samkeppninnar á útboðsvef. Fyrra þrep samkeppninnar verður öllum opið sem standast þær kröfur sem gerðar verða um þátttöku en seinna þrep verður lokað öðrum en höfundum valdra tillagna. Verðlaunafé verður kynnt þegar keppnislýsing verður auglýst. Dómnefnd hefur verið skipuð og vinnur að samkeppnislýsingu í samvinnu við kaupendur.

Þetta er í annað sinn sem boðið er til samkeppni um hönnun brúar yfir Fossvog, en úrskurðarnefnd kærunefndar útboðsmála felldi í júlí úr gildi fyrri hönnunarsamkeppni sem Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Kópabogsbær stóðu fyrir.