Flugvéladekkjaskeið og Hjálmalás vinna til verðlauna

Mannlíf Skóli og frístund

""

Úrslit og lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2018 var haldin í Háskólanum í Reykjavík , laugardaginn 26. maí. Meðal hugmynda sem hlutu verðlaun er sturtuhandklæðaskápur, flugvéladekkjaskeið, lestrarhjálp og fjölskyldutími.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) er keppni í nýsköpun fyrir 5. – 7. bekk grunnskólanna en keppnin var haldin í fyrsta skipti árið 1991 og er nú haldin í 28. sinn. Yfir 1200 hugmyndir, frá 38 skólum víðs vegar af landinu, bárust að þessu sinni. Dómnefnd valdi 26 hugmyndir, sem 40 nemendur standa að bak,  í vinnusmiðjuna, þ.e. úrslitakeppni NKG 201, sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík, dagana 24. og 25. maí. Þessir nemendur komust í gegnum strangt matsferli þar sem uppfinningar þeirra voru metnar með tilliti til hagnýti, nýnæmi og markaðshæfi. Ljósmyndir og nánari upplýsingar.
 

Úrslit NKG 2018 er eftirfarandi: 
Vilji – Hvatningarverðlaun kennara. Í ár hljóta 2 kennarar viðurkenninguna, fyrir framúrskarandi störf til eflingar nýsköpunar-menntunar á Íslandi og hljóta báðir  nafnbótina „ Nýsköpunarkennari grunnskólanna árið 2018“ ásamt verðlaunum að fjárhæð 125.000 kr, í boði Samtaka Iðnaðarins: Sædís Arndal í Hofsstaðaskóla og Arna Björk H. Gunnarsdóttir í Vesturbæjarskóla.

Aðalvinningshafar NKG 2018:

Fyrsta sæti: Guðjón Guðmundsson og Sölvi Páll Guðmundsson í Rimaskóla, með hugmynd sína flugvéladekkjaskeið. Verðlaun: Acer Swift 3 SF314 14” fartölva að verðmæti 120 þús. 

Annað sæti: Jóakim Uni Arnaldsson í Vesturbæjarskóla, með hugmynd sína Sturtuhandklæðaskápur. Verðlaun: Samsung A8 farsími að verðmæti 70.000 kr. 
Þriðja sæti: Salka Nóa Ármannsdóttir í Vesturbæjarskóla, með hugmynd sína Hjálmalás. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. 

Fjármálabikar Arion banka: Saga Líf Ágústsdóttir og Ásdís Ósk Brynjarsdóttir í Grunnskólanum á Ísafirði sem hljóta „viðurkenningu fyrir bestu fjármálalausnina“ með hugmynd sína Vasapeningar. Verðlaun: Samsung J5 farsími 
Tæknibikar Pauls Jóhannssonar: Trausti Helgi Atlason og Trausti Ingólfsson í Brekkubæjarskóla hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega útfærslu með hugmynd sína Rúlluendastimpill. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. 
Samfélagsbikar NKG: Sunneva Dís Freysdóttir og Lilja Petrea Líndal í Brekkubæjarskóla hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi samfélagslega nýsköpun með hugmynd sína Lestrarhjálp. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. 
Forritunarbikar NKG: Ylfa Sól Þorsteinsdóttir í Foldaskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun þar sem forritunar er þörf með hugmynd sína Fjölskyldutími. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. 
Hönnunarbikar NKG: Katrín Angela Jónsdóttir í Laugalækjarskóla, hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi hönnun með hugmynd sína Kúlukoddar. Verðlaun: Samsung J5 farsími að verðmæti 35.000 kr. 
Örforritun Kóðans: Vignir Gauti Guðjónsson og Björn Darri Ásmundsson í Brekkubæjarskóla, sem hljóta viðurkenningu fyrir framúrskarandi tæknilega nýsköpun þar sem forritunar er þörf, með hugmynd sína Svefnvaki 
Umhverfisverðlaun Einkaleyfisstofu: Freyja Gísladóttir í og Telma Rut Þorsteinsdóttir í Grunnskóla Reyðarfjarðar, sem hljóta  viðurkenningu fyrir framúrskarandi nýsköpun á sviði umhverfismála með hugmynd sína Plastleysari.

Nánari upplýsingar um verðlaun og viðurkenningar