Fjölmargar nýjar hleðslustöðvar fyrir rafbíla

Framkvæmdir Samgöngur

""

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að heimila umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna uppsetningar á 58 hleðsluúrtökum fyrir rafbíla á þrettán stöðum í miðborginni.

Slíkar hleðslustöðvar eru í samræmi við markmið Reykjavíkur um að styðja við umhverfisvæna samgöngumáta og draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og bæta loftgæði í borginni.

Stöðvarnar sem verða settar upp fullhlaða bíla á tveimur til fimm klukkustundum.  Hleðslustöðvarnar verða á veggjum bílastæðahúsa Bílastæðasjóðs og á stöndum með hleðsluúrtökum við götustæði. Til að hvetja til orkuskipta í samgöngum og fjölgun rafbíla verður rafmagnið á hleðslustöðvunum endurgjaldslaust. Sú ákvörðun er tímabundin þar til annað verður ákveðið.

Bílastæði með hleðslustöðvum við götur sem Reykjavíkurborg rekur verða gjaldfrjáls fyrstu 90 mínúturnar líkt og önnur gjaldskyld stæði fyrir vistvæn ökutæki.

Gerð verður krafa um það í útboðsgögnum að samningsaðili útvegi og starfræki rekstrarkerfi fyrir hleðslustöðvarnar og að notendum bjóðist smáforrit fyrir snjalltæki þar sem m.a. má sjá lausar stöðvar.

Heildarkostnaður við stöðvarnar er áætlaður um 40 milljónir króna en styrkur frá Orkusjóði er tæpar 11 milljónir króna.  Reiknað er með að framkvæmdir við uppsetningu hleðslustöðvanna hefjist í október og standi fram í mars á næsta ári.

Kynning á hleðslustöðvum fyrir rafbíla