Fjölbreyttir viðburðir á Barnamenningarhátíð í Listasafni Reykjavíkur

Mannlíf Menning og listir

""

Barnamenningarhátíð í Reykjavík fer fram dagana 17.-22. apríl. Listasafn Reykjavíkur tekur þátt í hátíðinni nú sem endranær og er af nógu að taka fyrir börn og fjölskyldur þeirra. 

Barnamenningarhátíð í Reykjavík fer fram dagana 17.-22. apríl. Listasafn Reykjavíkur tekur þátt í hátíðinni nú sem endranær og er af nógu að taka fyrir börn og fjölskyldur þeirra. 

Fyrir utan að frítt er inn á allar sýningar safnsins fyrir börn og gesti þeirra meðan á hátíðinni stendur hýsir safnið fjölda ókeypis viðburða. Ber þar helst að nefna Pop-Up ævintýraleikvöllinn sem haldinn verður í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og grafíksmiðju Prent og vina á Kjarvalsstöðum. 

Dagskrá Barnamenningarhátíðar í Listasafni Reykjavíkur

Þriðjudag 17. apríl kl. 15.30 til sunnudags 22. apríl
Kjarvalsstaðir

Reykjavík – borgin okkar – sýningin er opin yfir alla hátíðina

Þriðjudag 17. apríl kl. 16.00 til sunnudags 22. apríl
Kjarvalsstaðir

Lego Star Wars ljósmyndir eftir börn – sýningin er opin yfir alla hátíðina

Miðvikudag 18. apríl kl. 16-17.00
Hafnarhús 

Húlladúllan og sirkustímaflakkararnir – sirkussýning 5-9 ára barna

Fimmtudag 19. apríl kl. 16.00 til laugardags 21. apríl
Hafnarhús 

17 sjálfbærni þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna – skapandi nálgun unglinga

Laugardag 21. og sunnudag 22. apríl kl. 10-12.00
Kjarvalsstaðir 

Prent og vinir – grafíksmiðja – Facebook

Sunnudag 22. apríl kl. 10-16.00
Hafnarhús

Pop-Up ævintýraleikvöllur – Facebook

Ókeypis aðgangur.

Dagskrá Barnamenningarhátíðar