First Price haframjöl innkallað vegna skordýra

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Krónan ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað First Price havregryn finvalsede (haframjöl) vegna þess að skordýr hafa fundist í vörunni.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: First Price.
Vöruheiti: Havregryn finvalsede.
Strikanúmer: 7311041072981.
Nettómagn: 1 kg.
Best fyrir: 14.08.2019.
Framleiðsluland: Danmörk.
Innflytjandi: Krónan ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Þorleifsdóttir hjá Krónunni ehf., kristin@kronan.is.