Fegrun Grafarvogs

Umhverfi

""

Hjálpumst að við að fegra ásýnd hverfisins okkar. Fegrunarátaksdagur verður í Grafarvogi fimmtudaginn 11. júlí. Þátttakendur hittast á Korpúlfsstöðum klukkan 10.00 og þar verður þátttakendum, á öllum aldri, dreift niður á starfsstöðvar í Grafarvogi. Allt sem þarf til pokar, áhöld o.þ.h. verður til staðar.

Að lokum verður öllum boðið á grillhátíð við útigrillið í Gufunesbæ í hádeginu. Allir velkomnir að taka þátt. Þetta er tækifæri fyrir hverfisbúa að gleðjast saman um leið og lagt er til nærsamfélagsins. Það eru Korpúlfar, félag eldri borgara í Grafarvogi, sem drífa fegrun Grafarvogs áfram.