Fasteignaskattar lækkaðir um 10%

Fjármál

""

Í borgarráði í morgun var lögð fram tillaga borgarstjóra um að lækka fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði úr 0,2% í 0,18% af fasteignamati. Þá voru samþykktir auknir afslættir af fasteignagjöldum og fráveitugjöldum til eldri borgara og öryrkja sem mið taka af tekjum þeirra.

Dagur B. Eggertsson segir þessa lækkun til komna vegna mikilla hækkana á fasteignaverði á undanförnum árum en fasteignaskattar taka mið af metnu virði fasteignar. „Þessi lækkun er til þess gerð að milda áhrifin af fasteignaverðshækkunum en auk þess erum við að taka sérstakt tillit til aldraðra og öryrkja með auknum afsláttum,“ segir Dagur.

Afslættir til eldri borgara og öryrkja eru sem hér segir:
 

Viðmiðunartekjur

I. Réttur til 100% lækkunar

Einstaklingur með tekjur allt að 3.910.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 5.450.000 kr.

II. Réttur til 80% lækkunar

Einstaklingur með tekjur á bilinu 3.910.000 til 4.480.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 5.450.000 til 6.060.000 kr.

III. Réttur til 50% lækkunar

Einstaklingur með tekjur á bilinu 4.480.000 til 5.210.000 kr.
Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 6.060.000 til 7.240.000 kr.

Áhrif skattalækkunarinnar á borgarsjóð eru um 456 milljónir á næsta ári en uppsafnaður munur til loka ársins 2022 um 2,6 milljarðar króna  miðað við fimm ára fjárhagsáætlun borgarinnar.

Tillaga um fasteignaskatta er hluti af fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sem tekin verður til fyrri umræðu í borgarstjórn 7. nóvember nk.