Evrópska kvikmyndaakademían heiðrar Kaffibarinn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Evrópska kvikmyndaakademían stofnaði nýlega arfleifðardeild sem á að varðveita evrópska kvikmyndasögu. Hugmyndin er að vekja athygli á tökustöðum sem eru táknrænir fyrir evrópska kvikmyndagerð og veita þeim viðurkenningu. Tuttugu og tveir kvikmyndatökustaðir í Evrópu verða í ár heiðraðir og fá nafngiftina, „Treasures of European Film Culture“. Kaffibarinn er einn þeirra og fær nafngiftina fyrir hlutverk sitt í 101 Reykjavík. Myndin var frumraun Baltasar Kormáks sem kvikmyndaleikstjóri og hefur myndin hlotið fjölda verðlauna á kvikmyndahátíðum víðsvegar um heim.

Við afhendingu viðurkenningarinnar bauð Matthijs Wouter framkvæmdastjóri European Film Awards (EFA) fólk velkomið ásamt því að Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, veittu aðstandendum kvikmyndarinnar 101 Reykjavík ásamt fulltrúum Kaffibarsins verðlaunaskjöld.

Þessi viðurkenning markar upphaf þess að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða haldin hér á landi í Hörpu, 10. desember næstkomandi. Mikill heiður fylgir því að fá að halda hátíðina sem er annað hvert ár í Berlín en þess á milli í öðrum evrópskum borgum.

„101 Reykjavík er ein af perlum íslenskrar kvikmyndasögu og hróður hennar hefur borist um allan heim. Það er gaman að heiðra Kaffibarinn í dag, hann er ekki síður menningarfyrirbæri á Íslandi. Hann er fyrir löngu orðinn eitt af kennileitum borgarinnar, aðdráttarafl fyrir ferðamenn og ég held nú líka að ansi margir Íslendingar eigi sína eigin Kaffibarssögu,” segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

Kvikmyndin 101 Reykjavík þykir einstök aldamótalýsing á Reykjavík, byggð á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar. Sérstök efnistök og óhefðbundin samskipti kynjanna undir dúndrandi tónlist eru talin eiga stóran þátt í velgengni kvikmyndarinnar.

„Kaffibarinn er auðvitað lykilstaður í íslensku nætur- og skemmtanalífi og í raun líka menningarlífi. Það er engin tilviljun að hann hafi verið valinn sem heimahöfn Hlyns í 101 Reykjavík Hallgríms Helgasonar sem varð líklega ein fyrsta íslenska kvikmyndin sem fangaði nýju Reykjavík sem var að verða borg og hina einstöku stemningu sem hér er – allt í frábærum meðförum Baltasars Kormáks og einvalaliðs kvikmyndagerðarfólks og leikara“, segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.

„Það er mikill heiður að Kaffibarinn fái þessa viðurkenningu frá Evrópsku kvikmyndaakademíunni. Þegar kvikmyndin 101 Reykjavík kom út var Kaffibarinn aðalstaðurinn og þar hittumst við Hallgrímur Helgason reglulega. Þetta var heimili að heiman og fastagestir tóku að sér að leika í kvikmyndinni. Það er virkilega gaman að Kaffibarinn skuli enn lifa góðu lífi eftir öll þessi ár. Það felast mikil tækifæri í því að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin skulu vera haldin í Reykjavík í ár og megum við búast við mikilli kvikmyndaveislu í desember“, segir Baltasar Kormákur, leikstjóri.

Á meðal tökustaða sem hafa verið heiðraðir má nefna bókabúðina í kvikmyndinni Notting Hill, kaffihúsið Café des Deux Moulins í Amélie, Trevi gosbrunnurinn í Róm sem spilaði stórt hlutverk í La Dolce Vita og kvikmyndahúsið Círculo de Bellas Artes í Madríd sem hefur komið fyrir í kvikmyndum Pedro Almodóvar eins og Konur á barmi taugaáfalls.

Evrópska kvikmyndaakademían leitast við að styðja og tengja saman 4.400 meðlimi sína ásamt því að kynna verk þeirra. Markmiðið er að miðla þekkingu og fræða áhorfendur á öllum aldri um evrópska kvikmyndagerð. Akademían vill sameina alla þá sem unna evrópskri kvikmyndagerð og nær það hámarki í nóvember mánuði sem árlega er tileinkaður evrópskri kvikmyndagerð og svo Evrópsku kvikmyndaverðlaununum (EFA) í desember.

Nánari upplýsingar um „Treasures of European Film Culture“ og þá staði sem hafa verið heiðraðir: https://www.europeanfilmacademy.org/activity/treasures-of-film-culture/