Ertu með hugmynd að forvarnarverkefni?

Velferð Skóli og frístund

""
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki til forvarnarverkefna úr Forvarnarsjóði Reykjavíkur. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einstökum hverfum eða almennt í borginni.  
Hverfisráð veita styrki til verkefna í hverfum, en velferðarráð til almennra forvarnarverkefna í borginni. Verkefnin gefa einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum tækifæri til að vinna að forvörnum í borginni.  

Stofnanir Reykjavíkurborgar eða starfsmenn þeirra geta ekki sótt um styrki í sjóðinn en geta verið samstarfsaðilar í verkefnum sem aðrir sækja um styrk til.

Opnað er fyrir umsóknir 15. febrúar kl. 12:00 og er umsóknarfrestur til miðnættis 15. mars 2016.

Alls eru 10 milljónir króna til úthlutunar úr Forvarnarsjóðnum á þessu ári.
 
  • Hlutverk sjóðsins er að stuðla að forvörnum og styrkja félagsauð í hverfum Reykjavíkur. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til verkefna sem styðja:
  • Forvarnir í þágu barna og unglinga
  • Eflingu félagsauðs í hverfum borgarinnar
  • Bætta lýðheilsu
  • Markvisst samstarf íbúa, félagasamtaka, og fyrirtækja í þágu forvarna og félagsauðs
  • Önnur verkefni sem mæta þeim markmiðum sem borgarstjórn setur hverju sinni