Endurnýjun umferðarljósa á Sæbraut

Samgöngur Framkvæmdir

""

Á morgun, miðvikudaginn 28. ágúst,  verður unnið við endurnýjun umferðarljósa á gatnamótum Sæbrautar og Snorrabrautar.

Vinna við ljósin hefst eftir kl. 9.00 og meðan hún stendur yfir  er bann við vinstri beygju af Sæbraut inn Snorrabraut, sem og frá Snorrabraut inn á Sæbraut. Umferð verður beint um hjáleiðir um Borgartún, Katrínartún og Skúlagötu.

Nánar um framkvæmd á upplýsingasíðu í Framkvæmdasjá:  Frakkastígur og Sæbraut – gatnagerð, lagnir og umferðarljós