Endurnýjun og stækkun Hagaskóla

Framkvæmdir Skóli og frístund

Hagskóli séður frá Fornhaga.

Borgarráð samþykkti í dag tillögu um stækkun á Hagaskóla samhliða endurnýjun á húsnæði skólans. Töluverð uppbygging er framundan í skólahverfinu og er búist við áframhaldandi fjölgun nemenda í skólanum á næstu árum. Áætlaður framkvæmdatími er þrjú ár.

Hagaskóli er einn fjölmennasti skóli borgarinnar en þar eru nú yfir 600 nemendur í þremur árgöngum. Nemendur í tveimur árgöngum hafa stundað nám í öðru húsnæði frá því fyrir áramót eftir að mygla greindist í stórum hluta af húsnæði skólans, aðalbyggingu og vesturálmum. 

Mikil uppbygging framundan í hverfinu 

Hagaskóli var reistur á árunum 1957-62 og er mikil þörf  á gagngerum endurbótum á húsnæði skólans. Góður gangur er í framkvæmdum á aðalbyggingunni en unnið er að endurnýjun þar sem helst má nefna endurhönnun á brunavörnum, endurnýjun á loftræsingu og hljóðvist, endurnýjun gólfefna og glugga, bætt aðgengismál og klæðningu hússins að utan. Þá hefur verið unnið með starfsfólki að því að endurhanna innra skipulag svo betur henti nútíma kennsluháttum. 

Framundan er heilmikil uppbygging í þessum borgarhluta og gera spár ráð fyrir að nemendum fjölgi í allt að 700 á næstu árum. Ekki var hafist handa við viðgerðir á vesturálmum skólans þar sem til skoðunar hafa verið möguleikar á stækkun. Þrjár sviðsmyndir voru settar upp og kostir og gallar vandlega metnir. Með samþykki borgarráðs í dag var gefið leyfi til að fara af stað með hönnunarvinnu á nýrri byggingu sem mun rísa á grunni vesturálmanna tveggja sem þá verða rifnar. Samanlagt eru vesturálmurnar tvær um 880 m² en samkvæmt greiningunni sem lögð var fram í dag er áætlað að stærð nýrrar byggingar verði um 3.100 m². Hönnun er enn á frumstigi og hvorki hafa verið teknar ákvarðanir um nákvæma staðsetningu á lóðinni né útlit nýrra bygginga. 

Öll kennsla í og við Hagaskóla næsta vor 

Byggingakostnaður við framkvæmdina er áætlaður á þessu stigi 4.600 milljónir króna en í þeirri tölu er kostnaður við endurgerð aðalbyggingar sem áætlaður er 1.200 milljónir. Reiknað er með að endurnýjun aðalbyggingar ljúki að fullu sumarið 2023, en framkvæmdatími nýbygginga er um þrjú ár. Gert er ráð fyrir að nemendur úr tveimur árgöngum hefji næsta skólaár í bráðabirgðahúsnæði í Ármúla 28-30 en að kennsla færist í endurgerð rými aðalbyggingar og færanlegar kennslustofur sem komið verður fyrir á lóðinni, þegar það húsnæði verður tilbúið, sem gæti verið um eða eftir næstu áramót. Búist er við að öll kennsla muni fara fram í Hagaskóla og nágrenni næsta vor.