Endurhugsun friðarferla og friðaruppbyggingar - Friðarráðstefna

The Imagine Forum

Hvernig getum við endurhugsað friðarferla og friðaruppbyggingu með það að markmiði að stuðla að varanlegum friði. Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs, Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands í samstarfi við utanríkisráðuneytið og Nordic Women Mediators á Íslandi fer fram 10. október í Veröld - húsi Vigdísar.

Í ár er lögð áhersla á að skoða þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að friðaruppbyggingu í breyttu öryggisumhverfi. Hvað hafa fyrri átök og friðarferlar kennt okkur? Hvernig getum við stuðlað að skilvirkari friðarferlum og friðaruppbyggingu þar sem allar raddir fá að heyrast?

Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni í ár eru: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, Ketevan Tsikhelashvili, sendiherra og fastafulltrúi Georgíu í ÖSE, Jayathma Wickramanayake, sendifulltrúi ungmenna hjá Sameinuðu þjóðunum, Thania Paffenholz, forstöðumaður Inclusive Peace, Hiba Qasas, forstöðumaður Principles for Peace Initiative hjá Interpeace, Louise Olsen, rannsóknastjóri hjá Peace Research Institute Oslo (PRIO), Kirsi Joenpolvi, sérfræðingur hjá friðaruppbyggingar skrifstofu Sameinuðu þjóðanna, Niusha Khanmohammadi, sérfræðingur í mannréttinda og jafnréttismálum og listamaður frá Svíþjóð og Íran og Julie Arnfred Bojesen, forstöðumaður 'the Ukrainian-Danish Youth House' ásamt fleirum

Ráðstefnan fer fram á ensku og er opin öllum. 

Hlökkum til að sjá ykkur í Veröld