Eldhúskvarnir óæskilegar að mati heilbrigðiseftirlitsins

Heilbrigðiseftirlit Umhverfi

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir að fráveitukerfinu sé ekki ætlað að ferja malaðar matarleifar og leggst því alfarið á móti eldhúskvörnum í vöskum.

Kvarnir tengdar vöskum eldhúsa, hvort sem er í heimahúsum eða hjá matvælafyrirtækjum, eru óæskilegar að mati Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og leggst það alfarið gegn notkun þeirra. Frárennsliskerfinu er alls ekki ætlað að taka við og ferja malaðar matarleifar. Úrgangur sem þessi sest að hluta til í kerfinu, sérstaklega á straumlitlum stöðum.

Með aukinni notkun eldhúskvarna (eða sorpkvarna) verða stíflur algengari ásamt því að súrnun og súlfíðmyndun eykst og framangreint leiðir til tæringar lagna. Æskilegast er að þessi úrgangur sé nýttur á einhvern máta, t.d. til jarð- og gasgerðar.

Ætla má að þar sem eldhúskvarnir eru til staðar á heimilum aukist efnafræðileg súrefnisþörf um allt að 75% frá því húshaldi. Álagið eykst ekki einungis á fráveitukerfið heldur einnig á viðtakann sjálfan, Faxaflóa, þangað sem skólpi er dælt frá Reykjavík, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi, Kópavogi og Garðabæ.