Ekkert skóla- og frístundastarf á mánudag

Covid-19 Skóli og frístund

""

Tilkynning frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er varðar starfsemi leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs. 

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að skipulagningu skóla- og frístundastarfs miðað við ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16. mars verði starfsdagur í leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum og skólahljómsveitum til þess að stjórnendur og starfsmenn geti skipulagt fagstarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til. 

Foreldrar/forráðamenn leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, skólahljómsveitir, og aðrar tómstundir barna.