Einn og hálfur milljarður í lóðir í Reykjavík

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Alls bárust 42 gild tilboð í byggingarrétt til sölu á Bergþórugötu, Bústaðaveg og Hraunbæ með útboðsfyrirkomulagi. Í mars sl. auglýsti Reykjavíkurborg til sölu byggingaréttinn og samanlagt nema hæstu tilboð tæpum einum og hálfum milljarði króna eða 1.463.291.050 kr.

Tilboðsfrestur var til 10. apríl 2019 og voru tilboð opnuð sama dag. Haft hefur verið samband við hæstbjóðenda þar sem óskað er eftir að þeir skili gögnum sem kveðið er á um í úthlutunar- og útboðsskilmálum hverrar lóðar.

Um er að ræða sölu á: 

  • Bergþórugötu 18 íbúðarhúsalóð fyrir allt að þrjár íbúðir.
  • Bústaðaveg 151B fyrir allt að 3.815 fermetra atvinnuhúsnæði ofanjarðar auk bílakjallara.
  • Bústaðaveg 151C fyrir allt að 3.673 fermetra atvinnuhúsnæði ofanjarðar auk bílakjallara.
  • Hraunbæ 133 íbúðarhúsalóð fyrir allt að 58 íbúðir.
  • Hraunbæ 143 íbúðarhúsalóð fyrir allt að 58 íbúðir.

Samþykki tilboða og úthlutun lóða er í höndum borgarráðs og gert er ráð fyrir að hæstu tilboð verði lögð fyrir borgarráð til samþykktar í maí.

Nánari upplýsingar má finna á:

www.reykjavik.is/lodir