Eingreiðsla til starfsfólks 1. ágúst

Stjórnsýsla Atvinnumál

""

Reykjavíkurborg greiðir starfsfólki með lausa kjarasamninga eingreiðslu 1. ágúst.

Borgarráð hefur samþykkt viðauka við fjárhagsáætlun 2019 vegna eingreiðslu til starfsfólks borgarinnar sem verið hefur með lausa kjarasamninga síðan í vor. Eingreiðslan verður innt af hendi þann 1. ágúst næstkomandi og er hún tilkomin vegna tafa á viðræðum um nýja kjarasamninga.

Greiðslan er samkvæmt samkomulagi um endurskoðaða viðræðuáætlun sem aðilar komu sér saman um í lok júní um að innágreiðsla að upphæð 105.000 kr. verði greidd hverjum starfsmanni miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. júní 2019. Greiðslan kemur til útborgunar 1. ágúst 2019.  Jafnframt gerir endurskoðuð viðræðuáætlun ráð fyrir að samningar liggi fyrir í lok september.