Byrjað að dreifa nýjum tunnum í Grafarvogi

Sorphirða

Tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
Tvískipt sorptunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.

Byrjað er að dreifa nýjum tunnum fyrir sorphirðu í Grafarvogi. Tunnum er úthlutað samkvæmt gerð húsnæðis og fjölda íbúa. Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er. Tunnum fjölgar þar sem ekki voru endurvinnsluílát fyrir. Að lágmarki er hægt að hafa tvær tvískiptar tunnur í sérbýli með þremur eða færri íbúum.

Öll heimili fá jafnframt körfu og bréfpoka undir matarleifar sem dreift er samhliða tunnuskiptunum. Búist er við að dreifingin í hverfinu geti tekið allt að þremur vikum.

Hvernig fer þetta fram?

Nokkrir vinnuflokkar koma að verkinu. Tveir flokkar dreifa samhliða nýjum tunnum, körfum og bréfpokum. Þvínæst eru gömlu tunnurnar teknar til baka og síðast kemur teymi sem merkir eldri tunnur með nýjum samræmdum flokkunarmerkingum. Miðað er við að útskiptunum ljúki innan eins dags fyrir hvert heimili.  

Í Hamrahverfi, þar sem staðið hefur yfir tilraunaverkefni á söfnun matarleifa síðustu misseri, verður brúnum tunnum og gráum tunnum skipt út fyrir tvískiptar tunnur undir matarleifar og blandaðan úrgang í sérbýlum.

Skylda að flokka í fjóra flokka við húsvegg

Skylt varð að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við húsvegg hjá heimilum með lögum um hringrásarhagkerfi, sem tóku gildi í janúar 2023. Þetta er viðamikið umhverfismál en með réttri flokkun er hægt að minnka sóun og endurnýta verðmæti í stað þess að þeim sé hent.

Flokkað verður í eftirfarandi fjóra flokka við heimili:

  • Pappír og pappi
  • Plastumbúðir
  • Matarleifar
  • Blandaður úrgangur

Hvaða hverfi eru næst í röðinni?

  • Árbær og Breiðholt fá nýjar tunnur í júní.
  • Háaleiti og Bústaðir í júní og júlí.
  • Laugardalur í júlí.
  • Miðborg og Hlíðar í ágúst.
  • Vesturbær í september.

Tunnudreifingu á Kjalarnesi, Grafarholti og Úlfarsárdal er lokið en unnið er að lagfæringum vegna athugasemda sem hafa borist.

Ef það verða frávik í dreifingu, þannig að tunnur vantar, eða fjöldi á körfum er rangur miðað við íbúðir vinsamlegast sendið póst á upplysingar@reykjavik.is eða hafið samband í síma 411 1111.