Byggt í kringum Valhöll

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Tveir nýir byggingarreitir verða til í kringum Valhöll, Háaleitisbraut 1, þar sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins eru til húsa.

Borgarráð hefur samþykkt að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina númer 1 við Háaleitisbraut. THG Arkitektar hafa unnið tillöguna. Samkvæmt henni verður bætt við tveimur nýjum byggingarreitum á lóðinni auk þess sem heimilt verður að stækka hús Veitna sem stendur við Bolholt 5.

Næst Kringlumýrarbraut verður heimilit að reisa fimm hæða skrifstofubyggingu með bílakjallara. Á horni Skipholts og Bolholts verður heimilt að reisa 4 - 6 hæða íbúðarhús með bílakjallara og þjónustu- og verslunarrými á 1. hæð. Bílastæðum fjölgar á lóðinni eftir að nýjar byggingar rísa og verður hluti þeirra í bílakjallara. Byggingar- og nýtingarhlutfall hækkar sem þessu nemur.

Byggingarnar sem munu rísa á lóðinni skulu falla vel að byggingum í nágrenninu.

Eigandi lóðarinnar innir af hendi innviðagreiðslur samkvæmt samningi vegna aukins byggingarmagns og breyttrar notkunar á lóðinni. Lóðin er í eigu Sjálfstæðisflokksins.

Deiliskipulagstillagan