Byggingarréttur fyrir 400 íbúðir í Úlfarsárdal

Framkvæmdir Skipulagsmál

""

Byggðin í Úlfarsárdal stækkar og nú eru í boði íbúðir í þessu skemmtilega hverfi.  Nýjar lóðir hafa verið skipulagðar við Leirtjörn og einnig eru lausar lóðir í grónari hluta hverfisins.

Reykjavíkurborg hefur auglýst opið útboð á byggingarrétti fyrir 255 íbúðir og verður tekið við tilboðum til hádegis 4. maí. Auk lóða í almennu útboði hefur byggingarrétti fyrir 148 íbúðir verið ráðstafað.  Búseti og Bjarg íbúðafélag sem rekin eru án hagnaðarmarkmiða hafa fengið vilyrði fyrir lóðum við Leirtjörn og einnig hefur verið tekin frá lóð fyrir verkefni Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði fyrir fyrstu kaupendur. Á þessum lóðum verða um 148 íbúðir.  Alls eru því rúmlega 400 íbúðir að fara í uppbyggingu í Úlfarsárdal sem verður 1.300 íbúða hverfi þegar allt er uppbyggt. Aðrar lóðir eru nú þegar seldar.   

Íbúðirnar 255 sem boðnar eru í því opna útboði nú stendur yfir skiptast á nokkrar húsgerðir og er breytilegt eftir húsgerð hvort einstaklingar og/eða lögaðilar geta boðið í þær. Skiptingin er eftirfarandi:

  • Fjölbýli, 151 íbúð - lögaðilar
  • Raðhús, 48 íbúðir – einstaklingar og lögaðilar á nokkrum lóðum
  • Parhús, 4 íbúðir - einstaklingar
  • Einbýlishús, 32 einbýli - einstaklingar
  • Tvíbýlishús/einbýlishús, 20 íbúðir - einstaklingar

Lokafrestur til að skila tilboðum rennur út á hádegi föstudaginn 4. maí. Á útboðssíðu fyrir Úlfarsárdal eru tilboðsblöð og önnur útboðsgögn

Úlfarsárdalur býður gott aðgengi að fjölbreyttum útivistar- og náttúrusvæðum með einstöku samspili fjallsins, dalsins og árinnar. Gróður á útivistarsvæði við Leirtjörn mun taka mið af aðstæðum en við bakka tjarnarinnar verður leitast við að endurheimta náttúrlegt gróðurlendi með áherslu á gróðursetningu íslenskra tegunda, til dæmis víðikjarr og engjagras. Vatni verður veitt í tjörnina með blágrænum ofanvatnslausnum. Við Leirtjörn verður útivistarstígur sem tengist stígakerfi Úlfarsfells.

Neðst í dalnum við Úlfarsá er glæsilegt mannvirki í byggingu sem hýsa mun skóla, leikskóla, menningarmiðstöð, bókasafn, sundlaug og íþróttamannvirki. Nú þegar hefur hluti byggingarinnar verið tekinn í notkun og næsti áfangi verður tekinn í notkun næsta haust. Uppbygging á íþróttasvæðisins er vel á veg komin og ný útisundlaug verður tekin í notkun árið 2021.  

Tengt efni: