Búið að ráða í 98% stöðugilda í grunnskólum og 96% í leikskólum

Skóli og frístund

""

Á síðustu vikum hefur gengið vel að ráða í stöður í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum borgarinnar. Skólastarf hefst í grunnskólunum í dag.

Samkvæmt nýjasta yfirliti sem byggir á svörum stjórnenda allra skóla og frístundamiðstöðva dagana 14.-16. ágúst er búið að ráða í 98% stöðugilda í grunnskólunum, 96% stöðugilda í leikskólum og 78% stöðugilda frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva. Með fleiri leikskólarýmum hefur starfsfólki fjölgað, s.s. vegna stækkunar leikskóla og innritunar yngri barna. En þrátt fyrir aukna starfsmannaþörf er staðan í ráðningum betri nú en í fyrra, en þá var búið að ráða í tæplega 94% stöðugilda í leikskólunum miðað við 96% nú.

Leikskólar í Reykjavík sem borgin rekur eru 63 talsins, þar sem dvelja um 6.000 börn. Starfsfólkið er um 1.570 talsins.  Óráðið er í 60 stöðugildi, þar af í stöður tveggja aðstoðarleikskólastjóra, fimm deildarstjóra, 39 leikskólakennara, 4 sérkennslustjóra og 10 stuðningsliða.

Grunnskólar borgarinnar sem borgin rekur eru 36 talsins, þar sem um 14.000 börn stunda nám. Í skólunum starfa um 1.970 manns. Óráðið er í 8 stöðugildi kennara, 17 stöðugildi stuðningsfulltrúa, 14 skólaliða og eitt stöðugildi þroskaþjálfara. Staðan var mjög sambærileg hjá grunnskólunum í fyrra, en þá var óráðið í 33 stöðugildi.

Frístundaheimili borgarinnar eru starfrækt við alla 36 grunnskólana fyrir börn á aldrinum 6-9 ára. Alls verða um 4.000 börn í frístundaheimilum borgarinnar í vetur og fjöldi starfsfólks að jafnaði 950 í um 440 stöðugildum.

Hjá frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum er óráðið í um 100 stöðugildi eða um 200 starfsmenn í hálft starf. Margir háskólanemar starfa á frístundaheimilum meðfram námi og sýnir reynslan að þegar þeir fá stundatöflur geta þeir betur skipulagt vinnu sína og ráðið sig til starfa. Því er verið að ganga frá nýráðningum alla daga.

Gert er ráð fyrir að öll börn fái þjónustu á frístundaheimili í upphafi skólaárs, en verði á því tafir vegna fáliðunar, verður fyrst litið til forgangshópa en umsóknir síðan afgreiddar í tímaröð, elsta umsóknin fyrst. Þó njóta börn í 1. bekk forgangs, þá börn í 2. bekk og loks börn í 3. og 4. bekk.