Búið að opna biðstöð Strætó við Hagatorg að nýju

Samgöngur

""

Biðstöð Strætó hjá Hótel Sögu við Hagatorg var opnuð að nýju klukkan 11 í dag 15. júní.

Óvissa vaknaði um lögmæti biðstöðvarinnar í nóvember og Strætó ákvað að loka biðstöðinni til að forða vagnstjórum frá því að verða sektaðir. Reykjavíkurborg hefur nú fengið samþykki frá lögreglu fyrir opnun biðstöðvarinnar á nýjan leik.

Það er leið 11 sem keyrir þessa leið og notar biðstöðina.