Breytt akstursstefna í Tryggvagötu

Samgöngur

Götumynd af Tryggvagötu.

Á morgun, fimmtudaginn 10. júní breytist akstursstefna í Tryggvagötu.

Vegna undirbúnings við framkvæmdasvæði við Tryggvagötu á milli Nausta og Pósthússtrætis, mun á  morgun fimmtudag kl. 10 verða settar upp umferðarmerkingar þar sem m.a. akstursstefnu verður snúið við um austanverða Tryggvagötu.

Lokað verður fyrir innakstur í Tryggvagötu frá Kalkofnsvegi, Lækjargötu og Hverfisgötu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í desember.