Breytingar á umferð á horni Lækjargötu og Vonarstrætis

Samgöngur

""

Ágætt er fyrir vegfarendur að kynna sér breytingar sem gerðar hafa verið á umferð á horni Lækjargötu og Vonarstrætis en þar hafa ný umferðarljós verið sett upp.

Nú er unnið að framkvæmdum við hótel á hornlóðinni þar sem Íslandsbanki var áður. Ný umferðarljós hafa verið sett upp á gatnamótum Lækjargötu og Vonarstrætis, vegna þessara framkvæmda.

Útfærsla umferðar tekur mið af því að tryggja greiða og örugga gönguleið meðfram vinnusvæðinu og gera akstursleiðir öruggar. Gert er ráð fyrir að umferðin verði með þessum hætti næstu tvö árin.

Milli Skólabrúar og Vonarstrætis fer umferð nú eftir Lækjargötu um eystri akbraut þar sem vestari akbraut verður notuð undir gönguleið og vinnuaðstöðu verktaka.  Af þessum sökum lokast um helmingur safnstæðis hópbifreiða við Mæðragarð.

Einungis strætisvögnum verður heimilt að aka vestur Vonarstræti meðan á framkvæmdum stendur og þá aðeins ef þeir koma eftir Lækjargötu úr norðri (hægri beygja inn í Vonarstræti). Allri annarri umferð að Vonarstræti er beint um Skólabrú.

Óhefðbundið fyrirkomulag er á umferðarljósum í Vonarstræti þar sem ljósin eru nokkuð innarlega í götunni. Þetta er vegna þess að framhjá framkvæmdasvæðinu er einungis ein akrein en mikilvægt er að ökumenn virði það að stöðva við rauða ljósið. Ef það er ekki gert skapast umferðarhnútur á gatnamótunum sem heftir leið umferðar frá Lækjargötu.

Tenglar

Kort sem sýnir breytingarnar

Myndir af gatnamótum (11.07.2018)

Upplýsingasíða um lokanir gatna