Breyting á svæðisskipulagi fyrir „Höfuðborgarsvæðið 2040“

Samgöngur Skipulagsmál

""

Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins auglýsir tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu fyrir „Höfuðborgarsvæðið 2040" vegna undirbúnings Borgarlínu.

Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins auglýsir hér tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu „Höfuðborgarsvæðið 2040“, sbr. . 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006,.

Breytingartillagan er tilkomin vegna undirbúnings Borgarlínu – hágæða almenningssamgöngukerfis sem tengja á öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Breytingin markar samgöngu- og þróunarása og mun Borgarlínan mun liggja innan þeirra. Einnig eru sett fram leiðbeinandi markmið sem lúta að uppbyggingu innan samgöngu- og þróunarása.

Breytingartillagan, ásamt umhverfisskýrslu, ábendingum Skipulagsstofnunar og þeim athugasemdum sem bárust við tillögudrögin, liggur nú frammi til sýnis á skrifstofu SSH Hamraborg 9 Kópavogi, hjá Skipulagstofnun Borgartúni 7b í Reykjavík og á skrifstofum allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til og með 18. janúar 2018. Gögnin eru aðgengileg hér á vefsíðunni.

Þau sem vilja kynna sér tillöguna frekar er hvött til að mæta á opið hús á skrifstofu SSH Hamraborg 9, Kópavogi á eftirtöldum dögum:

Miðvikudaginn 13. desember kl. 11:30 – 13:30 og 15:30 – 17:30.
Fimmtudaginn 11. janúar kl. 11:30 – 13:30 og 15:30 – 17:30.

Fólk sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er hvatt til að kynna sér tillöguna.

Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skrifstofu SSH í Hamraborg 9, 200 Kópavogi eða á netfangið ssh@ssh.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 17. janúar 2018.

Svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins.

Tenglar

Tenglar á gögn

Borgarlínan