Bragðmikil Menningarnótt framundan

Velferð Umhverfi

""

Menningarnótt verður haldin laugardaginn 24. ágúst nk. og þá breytist miðborgin í iðandi vettvang menningar og lista; torg verða tónleikasalir, myndlist birtist á milli húsa, garðar ramma inn gjörninga og sjálft Hagatorg umbreytist í Danstorg. Hátt í 250 viðburðir eru á dagskrá Menningarnætur í ár. Landsbankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setur Menningarnótt á Hagatorgi-Danstorgi klukkan 13.00. Að lokinni setningu dansar þjóðdansahópur frá Assam héraði Indlands sem hingað er kominn í tilefni Menningarnætur. Að því loknu hefst dagskrá Hagatorgs – Danstorgs sem er fyrir allan aldur og tilvalið fyrir kynslóðirnar að mætast á stærsta hringtorgi landsins. Dansgarðurinn og Dansverkstæðið, sem standa að viðburðinum, eru „listrænir umbreytar Menningarnætur“. Danshópar á þeirra vegum munu sýna spunadans, þátttökudans, tískusýningu með dansívafi og boðið verður upp á fjölskyldusprikl.

BRAGÐMIKIL MENNING FYRIR ALLA ALDURSHÓPA

Í ár er haldin Brauðtertusamkeppni í Listasafni Reykjavíkur á Menningarnótt. Keppt verður um þrjú sæti, bragðbestu-, fallegustu og frumlegustu brauðtertuna. Barist verður til síðasta brauðbita!

Loft Slag eru samstöðutónleikar gegn loftlagsvá sem haldnir verða í bílastæðahúsinu Traðarkoti við Hverfisgötu 20 í samstarfi við Útvarp 101. Hljómsveitirnar FM Belfast og Hermigervill munu stíga á svið uppúr 19.30 og munu gestir dansa til þess að vekja athygli á loftslagsmálum, tónleikunum lýkur kl. 21.00.

Lúðrasveitir halda áfram battli á Klambratúni og þar verður barist til síðasta tóns. Þá verður Blindrafélagið heiðursgestur Menningarnætur en félagið heldur upp á 80 ára afmæli um þessar mundir og býður upp á fjölbreytta fræðslu- og skemmtidagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Þrír stórtónleikar verða í miðborginni, Tónaflóð Rásar 2 á Arnarhóli, Garðpartý Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum og Hip hop tónleikar á Miðbakkanum. Þá eru yfir hundrað tónlistarviðburðir um alla borg og frítt er inná öll söfn í miðborginni sem öll sýna fjölbreytta dagskrá fram á kvöld.

Í Hörpu verður  boðið upp á færeyska tónlist, indverskan dans og sveifludans og listamannaspjall frá kl. 13.00-18.00.

Að venju lýkur herlegheitunum með flugeldasýningu sem verður á sínum stað á Austurbakka kl. 23.00. Lögð er áhersla á að fjölskyldan sé saman á Menningarnótt og sé samferða heim. Hægt er að nálgast alla viðburði á Menningarnótt á vefnum menningarnott.is.

GÖTULOKANIR

Á Menningarnótt er miðborgin ein allsherjar göngugata og verður því lokuð fyrir bílaumferð frá kl. 7 að morgni til 2 eftir miðnætti. Það er gert til þess að tryggja öryggi gangandi og akandi vegfaranda á þessum fjölsóttasta hátíðardegi ársins. Gestir Menningarnætur eru hvattir til að ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur til að komast á hátíðasvæðið.

Þeir sem þurfa að koma á einkabíl er bent á að nota bílastæði við Borgartún og í Laugardalnum þar sem ókeypis strætóskutlur aka fólki til og frá hátíðarsvæðinu frá kl. 7.30-1.00. Eins og lög gera ráð fyrir verður sektað fyrir ólöglegar bílastöður og þeir bílar sem hindra aðgengi lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs verða dregnir í burtu svo unnt sé að tryggja aðgengi þessara öryggisaðila ef óhapp ber að. Hægt er að nálgast kort yfir götulokanir á vefsíðu Menningarnætur menningarnott.is eða fá upplýsingar í símaveri Reykjavíkurborgar frá kl. 8-23 á Menningarnótt, s.411-1111.

FRÍTT Í STRÆTÓ Á MENNINGARNÓTT

Ókeypis verður í Strætó sem keyrir samkvæmt hefðbundinni leiðartöflu fram til kl. 22.30. Þá tekur við sérstök leiðartafla sem miðar að því að koma fólki hratt og örugglega heim úr miðborginni. Strætó byrjar að ganga frá Sæbraut fyrir neðan Höfða strax að athöfn lokinni við Arnarhól og gengur til klukkan 01.00. Hægt er að finna nánari upplýsingar um leiðarkerfi þeirra vagna Strætó sem aka í miðborgina á vef Strætó.  Á Menningarnótt er boðið uppá ókeypis strætóskutlur sem aka reglulega til og frá bílastæðum við Laugardalshöll og Borgartún og að Hallgrímskirkju með viðkomu á Hlemmi. Þessi þjónusta hefur mælst vel fyrir síðustu ár en einkunnarorð hennar eru: Leggðu fjær til að komast nær.

AÐGENGI OG ÞJÓNUSTA

Sérstök bílastæði fyrir fatlaða og hreyfihamlaða eru á Skúlagötu, Túngötu og við Tækniskólann. Einnig verður hægt að taka leigubíl inn á Skólavörðuholt, Skúlagötu, Túngötu og BSÍ. Sérstök salerni fyrir fatlaða eru á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu. Nánari upplýsingar eru á vef menningarnott.is