Bókamessa í Bókmenntaborg í Hörpu um helgina

Skóli og frístund Menning og listir

""

Hin árlega Bókamessa Félags íslenskra  bókaútgefenda og Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO verður í Hörpu helgina 23. – 24. nóvember. Messan er opin báða daga frá kl. 11 – 17. Frítt er inn á alla dagskrárliði og nóg um að vera fyrir bókelskt fólk á öllum aldri.

Hin árlega Bókamessa í Bókmenntaborg verður haldin í Hörpu helgina 23. – 24. nóvember. Þar geta gestir baðað sig í bókaflóði ársins, hitt höfunda og útgefendur, hlustað á upplestur og létt spjall um alls konar bækur, notið ljóðastunda og skrafað um jólabækurnar við aðra lesendur. Yngstu lesendurnir geta gluggað í nýjar bækur í barnabókasmakki, hitt uppáhalds höfundinn sinn, litað og leikið sér mér höfundum. Hvergi gefst betra tækifæri til að kynnast bókaútgáfu ársins á einum stað og tryggja sér jólabækurnar á einstöku messuverði. Bókmenntaþátturinn Orð um bækur verður í beinni útsendingu á Bókamessu á laugardeginum kl. 15 og tekur Jórunn Sigurðardóttir útvarpskona á móti höfundum í bókmenntaspjall og miðlar stemmingunni á Bókamessu til allra landsmanna.  

Á sýningarsvæðinu verður margt um að vera, höfundar árita bækur sínar og spjalla við lesendur, boðið verður upp á leiki, bókasmakk fyrir börnin og Storytel býður gestum messukaffi. Útgefendur kappkosta að bjóða lesendur velkomna með líflegri dagskrá á sýningarsvæðinu og höfundar bregða á leik með sínum forlögum. 

Bókamessa í Bókmenntaborg er samstarfsverkefni Félags íslenskra bókaútgefenda og Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO og er þetta níunda árið sem messan er haldin. Útgefendum sem taka þátt í viðburðinum fjölgar með hverju árinu og er óhætt að segja að útgáfa ársins sé glæsileg. Bókamessan skilar svo þessari útgáfu ársins beint til lesenda á einu bretti.

Nánar um smekkfulla bókmenntadagskrá Bókamessu:

LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER

RÍMA A

Kl. 13:00 – 13:25
Byrjaðu að hlaupa         

Arnar Pétursson kynnir Hlaupabókina þar sem hann svarar helstu spurningum eins og „hvernig byrjarðu að stunda hlaup eða heldur áfram að bæta þig?“

Kl. 13:30 – 13:55
Tími töframanna

Arthúr Björgvin Bollason spjallar um þýðingu sína á metsölubókinni Tími töframanna - Áratugur hinna miklu heimspekinga 1919–1929 (Zeit der Zauberer) eftir þýska heimspekinginn og rithöfundinn Wolfram Eilenberger.

Kl. 14:00 – 14:50
Dularfullt fólk?

Maríanna Clara Lúthersdóttir fær til sín höfundana Bergþóru Snæbjörnsdóttur (Svínshöfuð), Braga Ólafsson (Staða pundsins), Kristínu Ómarsdóttur (Svanafólkið) og Sjón (Korngult hár, grá augu) og ræðir við þau um nýjar bækur þeirra.

Kl. 15:00 – 15:50
Lífssaga / skáldsaga

Björn Halldórsson spjallar við höfundana Auði Jónsdóttur (Tilfinningabyltingin), Björgu Guðrúnu Gísladóttur (Skuggasól) og Pétur Gunnarsson (HKL – ástarsaga) um lífssögur og skáldsögur.

Kl. 16:00 – 16:30
Fyrstu mánuðirnir

Sylvía Rut Sigfúsdóttir spjallar við Önnu Eðvaldsdóttur ljósmóður um líf hennar og störf í tilefni bókarinnar Fyrstu mánuðirnir – ráðin hennar Önnu ljósu.

RÍMA B

Kl. 13:00 – 13:40
Sögur mæðra okkar

Sæunn Kjartansdóttir (Óstýriláta mamma mín… og ég) og Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir (Jakobína –) saga skálds og konu) senda báðar frá sér bækur um mæður sínar. Þær lesa upp og kynna bækurnar fyrir gestum bókamessu.

Kl. 14:00 – 14:25
Stöngin út

Magnús Guðmundsson og Halldór Einarsson ræða um bókin Stöngin út sem segir frá ævintýralegu lífi Halldórs sem oft er kenndur við íþróttafatamerkið Henson.

Kl. 14:30 – 14:50
Með sigg á sálinni

Sagnameistararnir Einar Kárason og Friðrik Þór Friðriksson slá saman í safaríka sögu um lífsferil Friðriks Þórs (Með sigg á sálinni).

Kl. 15:00 – 16:00
Orð um bækur

Útvarpskonan vinsæla Jórunn Sigurðardóttir sest niður með rithöfundum og spjallar við gesti bókamessu í beinni útsendingu.
Kl. 15:00
Jórunn ræðir við Brynju Hjálmsdóttur (Okfruman), Pedro Gunnlaug García (Málleysingarnir) og Jónas Reyni Gunnarsson (Þvottadagar).

Kl. 15:40
Jórunn spjallar við Fríðu Ísberg (Leðurjakkaveður), Soffíu Bjarnadóttur (Hunangsveiði) og Vigdísi Grímsdóttur (Systa).

Kl. 16:05 – 16:30
Máttur hjartans – Sjáðu fyrir þér

Guðni Gunnarsson kynnir nýjusta bók sína Máttur hjartans – Sjáðu fyrir þér.

 

UNDRALAND BÓKANNA HJÁ SLEIPNI

Kl. 13:30 – 13:55
Perlustund

Eva Einarsdóttir og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir perla með ungum messugestum og segja sögur af Sögu.

Kl. 14:00 - 15:30
Sögustund fyrir yngstu lesendurna

Blær Guðmundsdóttir les úr bókinni Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp

Eva Einarsdóttir les úr bók sinni Saga um þakklæti
Sigrún Eldjárn les úr bók sinni Sigurfljóð í grænum hvelli
Æsa Guðrún Bjarnadóttir les úr þýðingu sinni á bók Lars Mæhle Risaeðlugengið - Eggið
Birgitta Haukdal les úr bók sinni Gamlárskvöld með Láru
Þórarinn Eldjárn les úr þýðingu sinni á bók Tove Jansson Hver vill hugga krílið?

Kl. 15:30 – 16:00
Skuggahliðin jólanna

Eva María Jónsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir lesa, kveða og spjalla um bók sína Skuggahliðin jólanna sem þær settu saman úr gömlum þulum og sögum um jólin sem til eru hljóðritaðar á Árnastofnun.

_______________________________

SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER

RÍMA A

Kl. 13:30 – 13:55
Ljóð í stafrænu formi

Anton Helgi Jónsson kynnir ljóðavefinn anton.is og spáir í möguleika ljóðsins á stafrænu formi.

Kl. 14:00 – 17:00
Ljóðastund

Ljóðasenan er einstaklega kraftmikil um þessar mundir og mun úrval skálda lesa upp úr nýjum ljóðabókum á messunnni.  Njóttu þess að hlusta ljóðaflutning, hvort sem þú staldrar við stutt eða lengur.

Kl. 14:00 – 15:00
Brynja Hjálmsdóttir (Okfruman), Brynjólfur Þorsteinsson (Þetta er ekki bílastæði), Fríða Ísberg (Leðurjakkaveður), Gerður Kristný (Heimskaut), Hildur Eir Bolladóttir (Líkn), Þórdís Gísladóttir (Mislæg gatnamót).      

Kl. 15:00 – 16:00
Harpa Rún Kristjánsdóttir (Edda), Valdimar Tómasson (Ljóð 2007 – 2018), Sigurlín Bjarney Gísladóttir (Undrarýmið), Bubbi Morthens (Velkomin), Þórarinn Eldjárn (Til í að vera til).

Kl. 16:00 – 17:00
Einar Már Guðmundsson (Til þeirra sem málið varðar), Hanna Óladóttir (Stökkbrigði), Guðrún Rannveig Stefánsdóttir (Vökukonan í Hólavallagarði), Ragnheiður Harpa Leifsdóttir (Sítrónur og náttmyrkur).

RÍMA B

Kl. 13:00 – 13:50
Hljóðbókabyltingin

Sigríður Kristjana Ingimarsdóttir bókmenntafræðingur spjallar við þau Stefán Hjörleifsson framkvæmdastjóra Storytel á Íslandi, Ragnar Jónasson rithöfund og Sölku Sól Eyfeld stórnotanda  hljóðbóka um hljóðbókabyltinguna sem fer um heiminn um þessar mundir.

14:00 – 14:55
Loftslagsmál og bókmenntir

Sverrir Norland sest niður með rithöfundunum Hildi Knútsdóttur (Nornin), Kristínu Helgu Gunnarsdóttur (Fjallaverksmiðja Íslands) og Steinunni Sigurðardóttur (Dimmumót) til að ræða hlutverk bókmennta í að skapa umræðu um umhverfismál.

15:00 – 16:00
Að kenna á lífið

Katrín Lilja Jónsdóttir ræðir um ungmennabækur við höfundana Ármann Jakobsson (Bölvun múmíunnar) Brynhildi Þórarinsdóttur (Ungfrú fótbolti), Ragnheiði Gestsdóttur (40 vikur), Ragnhildi Hólmgeirsdóttur (Villueyjar) og Hilmar Örn Óskarsson (Húsið í september).

UNDRALAND BÓKANNA HJÁ SLEIPNI

Kl. 13:00 – 13:50
Jólastund með Jönu

Jana María Guðmundsdóttir föndrar með börnunum út frá bók sinni Töfrandi jólastundir með börnunum. 

Kl. 14:00 – 14:50
Teiknismiðja RÓ

Bergrún Íris Sævarsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir kynna bókina RÓ og bjóða krökkum í teiknistund.

Kl. 15:00
Sögustund fyrir hressa krakka

Arndís Þórarinsdóttir les úr bók sinni Nærbuxnanjósnararnir.
Bergrún Íris Sævarsdóttir les úr bók sinni Langelstur að eilífu.
Þórdís Gísladóttir les úr bók sinni Randalín, Mundi og leyndarmálið.
Árni Árnason les úr bók sinni Friðbergur forseti.

Sjá nánar á Bókamessa í Bókmenntaborg