Bjarg og Búseti byggja í Bryggjuhverfinu

Velferð Umhverfi

""

Bjarg og Búseti eru að hefja uppbyggingu 124 nýrra íbúða við Tangabryggju í Bryggjuhverfinu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og fulltrúar Bjargs íbúðafélags og Búseti húsnæðissamvinnufélags tóku fyrstu skóflustunguna í gær.

Félögin byggja á sameiginlegum reit en hvort með sínar áherslur, enda Bjarg leigufélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag.

Bjarg hefur það markmið að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði.  Nú þegar er Bjarg með yfir 200 íbúðir í útleigu á þremur ólíkum stöðum, á Móavegi í Grafarvogi, Urðarbrunni í Úlfarsárdal og Asparskógum á Akranesi. Þá eru framkvæmdir við rúmlega þrjúhundruð nýjar íbúðir komnar vel á veg og rúmlega 500 íbúðir eru í undirbúningsferli.

Búseti leggur áherslu á að svara þörfum samfélagsins á hverjum tíma. Hjá félaginu er að finna mikla fjölbreytni í íbúðasamsetningu eftir rúmlega þrjátíu ára starfsemi. Innan samstæðu Búseta eru reknar í dag yfir 1.000 íbúðir og eru nú um 180 íbúðir í byggingu á vegum félagsins. Íbúðirnar sem Búseti byggir nú eru við Keilugranda í Vesturbæ Reykjavíkur, Árskóga í Mjódd og Tangabryggju í Bryggjuhverfinu. Búseti þjónar breiðum hópi félagsmanna með mismunandi þarfir þegar kemur að búsetuformi.

Byggingu fjölbýlishúsanna annast byggingarfélagið ÍSTAK. Verkfræðistofan Ferill sá um verkfræðihönnun og arkitektahönnun var í höndum Arkþings.