Bjarg byggir 60 nýjar íbúðir í Brekknaási

Loftmynd af Brekknaási

Fyrsta skóflustunga hefur verið tekin að 60 leiguíbúðum sem Bjarg íbúðafélag mun reisa í Árbæ við Selásbraut og Brekknaás.  Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók fyrstu skóflustunguna ásamt fulltrúum Bjargs og verktaka.

Íbúðirnar verða tveggja til fimm herbergja, á stærðarbilinu 54-106 m², í sex tveggja hæða fjölbýlishúsum. Staðsetningin þykir góð með tilliti til útivistar og tenginga við stofnbrautir, skóla og leikskóla, sundlaugar og hestaíþróttir. Gæludýrahald verður leyft í hluta íbúðanna en taka þarf sérstaklega fram í umsókn ef óskað er eftir slíkri íbúð.

Hönnuður er Svava Jóns hjá Arkitektúr og ráðgjöf og Húsvirki annast byggingarframkvæmdir.

Bjarg íbúðafélag áætlar að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar veturinn 2023 – 2024 og ætlar að opna fyrir umsóknir á vormánuðum 2023.

Mynd fyrir neðan af fyrstu skóflustungunni.  Frá vinstri eru Þorbjörn Guðmundsson, stjórnarmaður Bjargs, Anna Kristín Björnsdóttir, gjaldkeri Bjargs, Selma Unnsteinsdóttir, verkefnastjóri Bjargs, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs, Valdimar Grímsson, framkvæmdastjóri Húsvirkja og Ingþór Óli Thorlacius, byggingastjóri Húsvirkja.  Ljósmynd: Reykjavíkurborg / Róbert Reynisson.