Biluð gangbrautarljós við gatnamót Miklubrautar og Stakkahlíðar
Samgöngur Skóli og frístund
Gangbrautarljós við gatnamót Miklubrautar og Stakkahlíðar eru biluð. Unnið er að viðgerð og er áætlað að vinnu ljúki á morgun miðvikudag.
Bilun kom upp í umferðarljósum á mótum Lönguhlíðar og Miklubrautar nú síðdegis sem olli þó nokkrum umferðartöfum. Búið er að gera við bilunina.
Bilun er enn í gangbrautarljósnum við gatnamót Miklubrautar og Stakkahlíða og eru foreldrar beðnir um að fylgja börnum sínum yfir gatnamótin á meðan bilunin varir. Bílstjórar eru beðnir um að fara eftir umferðarmerkjum og sýna aðgát í fyrramálið þar sem fjöldi skólabarna fara yfir Miklubrautina daglega á leið sinni til og frá skóla.