Aukinn systkinaafsláttur til foreldra

Skóli og frístund

""

Fyrir áramót var samþykkt að gerðar yrðu breytingar á systkinaafslætti gjalda fyrir leikskóla- og frístundaþjónustu með þeim hætti að barnafjölskyldur greiði aðeins námsgjald fyrir eitt barn, þvert á skólastig. 

Áhrifin eru þau að systkinaafsláttur vegna eldri systkina hækkar úr 75% í 100% sem mun bæta hag barnafjölskyldna með fleiri en eitt barn á leik- og grunnskólaaldri þar með talið hjá dagforeldrum.Skóla- og frístundasvið hefur unnið að útfærslu þessarar ákvörðunar og leggur nú til að gerðar verði breytingar á reglum um leikskólaþjónustu, reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva.

Breytingar á reglunum þýða að framlög verða líka aukin vegna systkina til sjálfstætt rekinna leik- og grunnskóla með samning við skóla- og frístundasvið og þá er gert ráð fyrir að aukið framlag taki mið af gjaldskrá sviðsins auk þess sem greitt er 15% álag.

Unnið er að gerð samnings við sjálfstætt rekna grunnskóla með þjónustusamning við skóla- og frístundasvið vegna reksturs frístundaheimila þeirra og er þar gert ráð fyrir að framlagið vegna frístundaheimila taki mið af auknu framlagi vegna systkina með þeim hætti að miðað verði við gjaldskrá skóla- og frístundasviðs vegna frístundaheimila borgarinnar.

Tekið er fram að þessi breyting á systkinaafslætti hefur ekki áhrif á aðra afslætti samkvæmt reglum. Þannig geta foreldrar bæði fengið 100% systkinaafslátt og námsmannaafslátt.  Lagt er til að fjárheimildir sviðsins verði hækkaðar um rúmlega 15 milljónir vegna breytinga á reglunum.  

Sjá töflu með dæmum um breytingar