Auglýst eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna

Mannlíf Skóli og frístund

""

Viltu vekja athygli á gróskumiklu grunnskólastarfi í borginni? Viltu veita starfsfólki í skóla- og frístundastarfi hvatningu? Veistu af metnaðarfullum þróunarverkefnum, tilraunum, skemmtilegum samstarfsverkefnum sem grunnskólarnir taka þátt í? Tilnefndu til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs 2020. 

Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk skóla- og frístundasviðs, aðrir borgarstarfsmenn, grunnskólar, leikskólar, frístundamiðstöðvar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, skólahljómsveitir, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð og fær starfsstaður viðurkenningarskjal og verðlaunagrip til eignar. Skilafrestur fyrir tilnefningar er 31. janúar.

Tilnefningar sendist á sfs@reykjavik.is

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið grunnskólastarf verða afhent á Öskudagsráðstefnunni sem haldin verður 26. febrúar 2020.

Meira um hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs