Áskoranir og tækifæri sem leiða til sjálfbærs skipulags

Samgöngur

""

Rannsóknarhópar frá norska háskólanum NBMU ásamt samstarfsaðilum þeirra við Háskóla Íslands munu kynna niðurstöður úr rannsóknum um samgöngur og skipulag á Höfuðborgarsvæðinu þann 3. júní nk. í Norræna húsinu. Málþingið mun fjalla um markmið, áskoranir og tækifæri sem geta leitt til sjálfbærs skipulags og samgangna. 

Á málþinginu verða kynntar niðurstöður úr Resactra-is rannsóknarverkefninu sem fjallar um ferðavenjur og byggt umhverfi Höfuðborgarsvæðisins. Einnig verða kynntar niðurstöður úr verkefninu SuReCa (Leit að sjálfbærri höfuðborg Reykjavíkur: lífsstíll, viðhorf, ferðavenjur, vellíðan og áhrif ungra fullorðinna á loftslagsbreytingar). Byggt á núverandi markmiðum um skipulag höfuðborgarsvæðisins, mun málþingið fjalla um markmið, áskoranir og tækifæri sem geta leitt til sjálfbærs skipulags og samgangna. 

Allar upplýsingar um málþingið, skráningu og dagskrá má finna á þessari slóð www.nmbu.no/go/resactrais

Sama dag mun Dr. Petter Næss Prófessor við NMBU flytja fyrirlestur í Háskóla Íslands kl. 10.30-12, sjá nánar hér https://www.hi.is/vidburdir/gestafyrirlestur_petter_naess

Viðburður á Facebook