ASÍ og BSRB fá lóðir undir 1.000 íbúðir í Reykjavík

Framkvæmdir Skipulagsmál

""

Í dag var skrifað undir viðurkenningu á úthlutun lóða til Bjargs íbúðafélags á vegum ASÍ og BSRB. Undirritunin fór fram að Móavegi í Grafarvogi en þar er gert ráð fyrir 120 íbúðum. Alls mun Bjarg byggja eitt þúsund íbúðir fyrir tekjulága á vinnumarkaði í samstarfi við Reykjavíkurborg. 

Reykjavíkurborg hefur gengið frá úthlutun lóða til Bjargs íbúðafélags sem rekið er án hagnaðarmarkmiða, en stofnendur þess eru ASÍ og BSRB. Félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að ódýru, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði.

Úthlutun byggingarréttar er á þremur stöðum í borginni:

Í Spönginni í Grafarvogi við Móaveg 2 – 4, en í nýju skipulagi Spangarinnar er gert ráð fyrir 120 íbúðum í sjö sjálfstæðum eins til fjögurra  hæða byggingum sem raðast kringum miðlægan garð. 
Í Úlfarsárdal við Urðarbrunn 33 – 35 og 130 – 134.  Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir 53 íbúðum í tveimur sjálfstæðum byggingum.
Á Kirkjusandi við Hallgerðargötu er gert ráð fyrir 63 íbúðum á lóðum G og  H.

Leiguheimili með áherslu á hagkvæmni og gæði

Íbúðir Bjargs verða svokölluð leiguheimili og byggja á nýjum húsnæðislögum um almennar íbúðir og verða leigðar út til fólks með lágar- og meðaltekjur. Að sögn Björns Traustasonar framkvæmdastjóra Bjargs verður lögð áhersla á hagkvæmni í byggingu, rekstri, endingu og góða nýtingu á rýmum, án þess að það verði á kostnað gæða.

Við uppbygginguna verður horft til hugmynda um Nýju Reykjavíkurhúsin um félagslega blöndun,  íbúalýðræði og hönnun. Miðað er við að Félagsbústaðir Reykjavíkurborgar eignist eða fái til úthlutunar að jafnaði 10-20% íbúða í uppbyggingarverkefnum. Íbúðir á skipulagssvæðunum eru fyrir fjölbreyttan hóp íbúa og eru misstórar.

Sjálfbær rekstur íbúðafélags

Bjarg íbúðafélag er eins og áður segir rekið án hagnaðarmarkmiða, sem sjálfseignarstofnun Alþýðusambands Íslands og BSRB.  Félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að ódýru, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði með því að byggja, kaupa, leigja, stjórna, viðhalda og endurbyggja leiguíbúðir á grundvelli laga nr. 52-2016 um almennar íbúðir.

ASÍ og BSRB leggja fram stofnfé til þessa almenna íbúðafélags. Þá munu aðildarfélög veita íbúðafélaginu víkjandi lán til að tryggja félaginu rekstrarfjármögnun fyrstu árin, eða þar til reksturinn er orðinn að því umfangi að hann verði sjálfbær.

Framkvæmdastjóri Bjargs er Björn Traustason. Formaður stjórnar er Gylfi Arnbjörnsson og varaformaður Árni Stefán Jónsson. Aðrir í stjórn eru Elín Björg Jónsdóttir, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Ólafía B. Rafnsdóttir, Sigurður Bessason, Þorbjörn Guðmundsson,Garðar Hilmarsson og Bjarni Þór Sigurðsson.

Viljayfirlýsing um þúsund íbúðir

Fyrir ári síðan, í mars 2016, gáfu Reykjavíkurborg og ASÍ  út viljayfirlýsingu og er lóðaúthlutunin nú á grunni hennar.

Reykjavíkurborg stefnir að því að úthlutað verði lóðum fyrir uppbyggingu 1.000 almennra íbúða (leiguíbúða) á grundvelli laga frá Alþingi sem jafnframt feli í sér stofnframlag Reykjavíkurborgar til uppbyggingarinnar í samræmi við ákvæði laganna.

Áætlunin var þessi:
• árið 2016  verði úthlutað lóðum fyrir 150 íbúðir
• árið 2017 verði úthlutað lóðum fyrir 250 íbúðir
• árið 2018 verði úthlutað lóðum fyrir 300 íbúðir
• árið 2019 verði úthlutað lóðum fyrir 300 íbúðir.

Húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar

Bjarg íbúðafélag