Árbæjarsafn 65 ára – kíkt á bak við tjöldin 

Mannréttindi Menning og listir

Lífið í þorpinu á Árbæjarsafni. Ljósmynd Roman Gerasymenko

Árbæjarsafn fagnar 65 ára afmæli og verður boðið til afmælisveislu sunnudaginn 14. ágúst frá klukkan 13 - 16 með skemmtilegri og fræðandi dagskrá á safninu. Öll eru hjartanlega velkomin og að sjálfsögðu er ókeypis aðgangur.  

Hinn 11. ágúst 1957 var fáni dreginn að húni við Árbæjarsafn í fyrsta sinn til marks um að gestir væru boðnir velkomnir í safnið. Árbær á sér langa og merka sögu en bærinn hefur löngum verið vinsæll áningastaður. Óhætt er að segja að Árbæjarsafn skipar sérstakan sess í hugum íbúa borgarinnar og gesta hennar enda er safnið sannkölluð vin í borgarlandslaginu þar sem fólk á öllum aldri getur upplifað stemninguna í Reykjavík eins og hún var í gamla daga. Og ekki má gleyma að minnast á sívinsæla jóladagskrá safnsins og alla fjölbreyttu viðburðina sem boðið er upp á allt árið um kring.

Spennandi afmælisdagskrá

Í tilefni af afmælinu munu sérfræðingar safnsins vera til skrafs og ráðgerða og fræða gesti um allt það góða starf sem unnið er á safninu. Gestir geta kíkt inn í varðveisluhús safnsins og séð hvernig búið er um gripi fyrir komandi kynslóðir, kynnt sér vinnu er að snýr að minjavörslu í borgarlandinu er snýr að fornleifum og verndun eldri húsa, kynnt sér fræðslustarf safnsins og hvernig safnhúsin eru útbúin til sýningar.  

Á safninu má einnig finna landnámshænurnar og í haga eru hestar, kindur og lömb. í Dillonshúsi er heitt á könnunni og heimabakað góðgæti. Hillur Krambúðarinnar eru stútfullar af sælgæti og í safnbúðinni fæst gómsætur ís.  

Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni: Eitt safn á fimm frábærum stöðum.