Alþjóðadeild við Landakotsskóla

Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt að heimila Landakotsskóla að vinna að tveggja ára þróunarverkefni sem felur í sér rekstur alþjóðadeildar við skólann. 

Gert er ráð fyrir að 24 grunnskólanemendur stundi nám við alþjóðadeildina í Landakotsskóla.

Í bókun fulltrúa Samfylkingar, Bjartrar framtíðar og áheyrnarfulltrúa Pírata frá fundi ráðsins 24. júní var þessari viðbót við flóru skólastarfs í borginni fagnað. Jafnframt segir í bókuninni að mikilvægt sé að svara vaxandi eftirspurn um vandað alþjóðlegt nám fyrir börn erlendra starfsmanna í atvinnulífi borgarinnar, diplómata og barna af íslenskum uppruna með tímabundna búsetu hér á landi. Landakotsskóli sé skóli með langa og farsæla sögu og faglegur metnaður einkenni áform skólans um stofnun alþjóðadeildar.