Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins fundaði með sóttvarnalækni

Stjórnsýsla Heilbrigðiseftirlit

""

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins kom saman í morgun kl. 8.00 að beiðni sóttvarnalæknis. Tilefni fundarins var samræming og skipulag viðbragða við kórónaveirunni (2019-nCoV). Sóttvarnalæknir fór yfir hlutverk höfuðborgarsvæðisins í viðbrögðum ef og þegar veiran kemur upp á Íslandi.

Í kjölfarið kom neyðarstjórn Reykjavíkurborgar saman til að undirbúa samhæfingu viðbragða við kórónaveirunni (2019-nCoV). Neyðarstjórnin fundaði einnig með sóttvarnalækni.

Sóttvarnalæknir og Embætti landlæknis hafa lýst yfir óvissustigi vegna kórónaveirunnar. Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar hefur þegar hafið undirbúning að viðbrögðum vegna veirunnar sem felst m.a. í því að tryggja órofna þjónustu. Stjórnendur borgarinnar verða í kjölfarið upplýstir um nauðsynlegar forvarnaraðgerðir og aðgerðir.

Sóttvarnalæknir og Almannavarnir munu upplýsa almenning jafnóðum um þróun mála en þessir aðilar hafa yfirumsjón með viðbrögðum vegna veirunnar.

Allar nauðsynlegar upplýsingar um kórónaveiruna (2019-nCoV) og viðbrögð við henni má finna inn á vefsíðu Landlæknis www.landlaeknir.is