Allt að 300 umsækjendur um alþjóðlega vernd fá þjónustu

Velferð Mannréttindi

""

Þjónustusamningur velferðarsviðs við Útlendingastofnun verður endurnýjaður og þeim fjölgað sem borgin veitir þjónustu, úr 220 í 300. Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í gær.

Borgarráð veitti í gær sviðsstjóra velferðarsviðs heimild til að endurnýja þjónustusamning við Útlendingastofnun, þannig að allt að 300 umsækjendur um alþjóðlega vernd fái þjónustu í Reykjavík. Með því var brugðist við beiðni Útlendingastofnunar, sem barst í október síðastliðnum.

Jafnframt var sviðsstjóra velferðarsviðs veitt umboð til að ganga til samninga við félagsmálaráðuneytið um tilraunaverkefni um samræmda móttöku flóttamanna. Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur sviðsstjóra er verið að ganga frá síðustu lausu endunum varðandi þann samning sem gerir ráð fyrir að velferðarsvið geti þjónustað allt að 380 flóttamenn á ári.  

Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem setjast að í Reykjavík hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Í fyrsta samningnum sem Reykjavíkurborg gerði við Útlendingastofnun árið 2014 var allt að 50 manns tryggð þjónusta. Í samningnum sem gilti frá apríl 2019 veitti Reykjavíkurborg allt að 220 einstaklingum þjónustu. 

Samhliða þessari miklu fjölgun hefur velferðarsvið aukið til muna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd sem er fólgin í margþættri aðstoð við athafnir daglegs lífs, bæði inni á heimilum fólks og í samskiptum við aðrar stofnanir. Stuðningurinn kemur frá þvergfaglegu teymi sem starfar á velferðarsviði þar sem starfsfólkið er með fjölbreytta menntun, mismunandi bakgrunn og reynslu. Markmið teymisins er að veita umsækjendum sem besta þjónustu meðan á umsóknarferli stendur, stuðla að vellíðan þeirra, valdefla þá og styrkja. 

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs, segir mikilvægt að samræma móttöku flóttafólks, óháð því hvort það kemur sjálft til landsins og sæki um alþjóðlega vernd eða í boði stjórnvalda. „Hér er tekið mikilvægt skref í þá átt. Við sem samfélag þurfum að leggja okkur fram um að taka vel á móti hverjum og einum sem hingað kemur. Fólk er oft að koma úr erfiðum aðstæðum og við í Reykjavík getum veitt ráðgjöf og stuðning en til að vel takist til þarf samfélagið allt að koma með og sýna þessum nýju íbúum að þeir eru velkomnir og að hér fái þeir raunveruleg tækifæri til að taka þátt í íslensku samfélagi. Ég er stolt af þessu skrefi sem við erum að stíga í dag og við munum halda áfram að þróa þjónustu Reykjavíkur við flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd,“ segir Heiða Björg.

Í samningi velferðarsviðs við Útlendingastofnun felst að útvega umsækjendum  um alþjóðlega vernd húsnæði, fæðis- og framfærslueyri og skólavist fyrir börn, ásamt ýmissi annarri þjónustu á meðan umsókn þeirra um alþjóðlega vernd er til meðferðar hjá stjórnvöldum. Önnur þjónusta getur verið aðstoð vegna heilbrigðistengdrar þjónustu, túlkaþjónustu og ýmiss konar ráðgjöf. Allur kostnaður vegna samningsins greiðist af Útlendingastofnun.