Áhrif samfélagslegrar nýsköpunar á íslenskt samfélag

Framkvæmdir Hverfisskipulag

""

Opinn fundur verður haldinn í Norræna húsinu fimmtudaginn 6. september næstkomandi. Á fundinum verður rætt um áhrif samfélagslegrar nýsköpunar á íslenskt samfélag. Fundurinn hefst klukkan 12.00 og lýkur 13.30.

Er til umhverfisvæn lausn sem getur komið í stað plastflöskunnar? Hvernig er aðgengi fyrir hreyfihamlaða á veitingastöðum landsins? Geta ungir strákar lært að skilja betur eigin tilfinningar? Þessar spurningar og fleiri verða til umræðu auk þess sem boðið verður upp á örkynningar á áhugaverðum samfélagsverkefnum sem sýna glöggt fjölbreytt litróf samfélagslegrar nýsköpunar hér á landi. Þeir sem standa að fundinum eru Höfði Friðarsetur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Reykjavíkurborg og samstarfsaðlila viðskiptahraðalsins Snjallræðis 

Dagskrá fundarins:

Samfélagsleg nýsköpun – krafa nýrrar kynslóðar?

Ragna Sara Jónsdóttir fjallar um mikilvægi þess að horfa til samfélags- og umhverfisþátta í nýsköpun í dag. Hvernig hefur hugtakið samfélagsleg nýsköpun þróast á undanförnum árum og hver er staðan í löndunum í kringum okkur? Ragna Sara hefur starfað með einum eða öðrum hætti við sjálfbærni, samfélagsábyrgð, jafnréttis- og umhverfismál frá árinu 2008 bæði við ráðgjöf, kennslu, innleiðingu og stjórnun, meðal annars fyrir Sameinuðu þjóðirnar (UNDP), utanríkisráðuneytið, Landsvirkjun og UN Women.

Samfélagslegur ávinningur af verkfræði

Rúnar Unnþórsson fjallar um þátt verkfræðinnar í mótun nútíma samfélags, hlutverk verkfræðinnar í samfélagslegri nýsköpun og hvernig áherslur á samfélagsábyrgð hafa þróast innan verkfræðinnar. Rúnar er prófessor í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og hefur tekið þátt í fjölmörgum samfélagslegum nýsköpunarverkefnum, til að mynda á sviði umhverfisverndar og heilbrigðisvísinda.

Fundarstjóri: Hrund Gunnsteinsdóttir, þróunarfræðingur og stjórnarformaður Tækniþróunarsjóðs.

 

Kynning á Snjallræði, nýjum viðskiptahraðli fyrir frumkvöðla sem vilja virkja hugsjónir sínar til að leysa úr samfélagslegum áskorunum. Opið er fyrir umsóknir í hraðalinn sem hefst í haust – 10/10 2018 - www.snjallraedi.is Umsóknarfrestur er til 10. september nk.