Aðgerðir til að styrkja Barnavernd Reykjavíkur

Velferð

""

Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í dag, 15. nóvember, tillögu velferðarráðs og barnaverndarnefndar um verulega styrkingu á starfsemi Barnaverndar Reykjavíkur.

Stöðugildum verður fjölgað um fjögur og tvær fagskrifstofur settar á laggirnar. Önnur skrifstofan verður á  sviði stjórnsýslu, með áherslu á lagalega umgjörð í barnaverndarmálum, gæða- og fræðslumál og hin skrifstofan verður með áherslu á ráðgjöf og stuðning við börn og foreldra. Með stofnun skrifstofanna færist Barnavernd Reykjavíkur ofar í skipuriti velferðarsviðs auk þess sem tengslin við barnaverndarnefnd verða sýnilegri.

Jafnframt er lagt til að auka verulega fræðsluhlutverk Barnaverndar Reykjavíkur og samstarf við helstu hagsmunaaðila auk þess að flýta fyrir notkun rafrænna lausna í daglegri umsýslu. Húsnæðismál Barnaverndar Reykjavíkur verða endurskoðuð og unnið er að undirbúningi tillögu um sérstaka starfsemi sem mun halda utan um stuðningsþjónustu á vegum Barnaverndar og þjónustumiðstöðva.

Farið er í aðgerðir í kjölfar úttektar RR ráðgjafar og Capacent á skipulagi og verklagi hjá Barnavernd Reykjavíkur og samstarf Barnaverndar við aðrar stofnanir í málefnum barna og fjölskyldna þeirra.  Í úttektinni kom fram að öflugt og faglegt starf sé unnið hjá Barnavernd Reykjavíkur en tækifæri væru til umbóta, bæði í starfsemi Barnaverndar og í samstarfi við þjónustumiðstöðvar og aðra aðila innan borgarkerfisins sem koma að barnavernd.

,,Markmiðið er að efla snemmtæka íhlutun og forvarnir, bæði hjá Barnavernd Reykjavíkur og þjónustumiðstöðvum og styrkja starfsumhverfi ráðgjafa“ segir Regína Ásvaldsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs.

Hákon Sigursteinsson nýráðinn framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur mun leiða breytingarnar í nánu samstarfi við starfsfólk og barnaverndarnefnd en áætlað er að auglýsa störf skrifstofustjóra og fleiri stöður á næstu vikum. Áætlaður kostnaður við aðgerðir til að styrkja starfsemi Barnaverndar Reykjavíkur nemur um 90 milljónum króna á árinu 2019.

Tillaga velferðarráðs um styrkingu á Barnavernd Reykjavíkur og Úttekt Capacent og RR Ráðgjafar á skipulagi barnaverndarstarfs í Reykjavík

Tillögur að nýju skipuriti velferðarsviðs.