35% Reykvíkinga nota rafhlaupahjól

Samgöngur

Næst algengast er að rafhlaupahjól séu notuð til og frá vinnu eða skóla, naumlega 42%. Hlutfallslega fleiri nota eigin hjól í þær ferðir. Mynd/Róbert Reynisson
Kona á rafhlaupahjóli á göngustíg í miðborg Reykjavíkur.

Rúm 35% Reykvíkinga, 18 ára og eldri, nota rafhlaupahjól eitthvað en sambærilegt hlutfall fyrir tveimur árum var 19%. Ríflega einn af hverjum 10 notar rafhlaupahjól vikulega eða oftar, tæplega 14% nota þau einu til þrisvar sinnum í mánuði og um 11% nota þau sjaldnar.

Notkun á rafhlaupahjólum er mest meðal fólks á aldrinum 18-34 ára en svo dregur úr notkun eftir því sem aldur hækkar. Að sama skapi er notkunin mest meðal íbúa í Miðborg/Vesturbæ og Hliðum og Laugardal  en notendum hefur fjölgað talsvert í flestum hverfum.  Einnig nota karlar rafhlaupahjól í meira mæli en konur.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum könnunnar Gallup á notkun rafhlaupahjóla fyrir Reykjavíkurborg en niðurstöðurnar voru kynntar í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í gær.

    Rafhlaupahjólaeign meiri austan Elliðaáa

    Algengast er að rafhlaupahjól séu notuð í ferðir til og frá skemmtistöðum, börum og veitingahúsum, eða rúm 47%. Þær ferðir eru nær eingöngu farnar á leiguhjólum, 96% á leiguhjólum, 4% á eigin rafhlaupahjóli. Næst algengast er að rafhlaupahjól séu notuð til og frá vinnu eða skóla, naumlega 42%. Hlutfallslega fleiri nota eigin hjól í þær ferðir eða um 26% eru á eigin rafhlaupahjóli og 74% á leiguhjóli.

    Einnig var kannað hvort að barnið/börnin á heimilinu noti rafhlaupahjól. Niðurstöðurnar benda til þess að meira en helmingur 13-15 ára unglinga noti þennan fararmáta. Athuga þarf þó að það eru ekki börnin sjálf sem svara þessari könnun heldur forráðafólk.

    Enn fremur sýna niðurstöður að rafhlaupahjólaeign er algengari í hverfunum austan Elliðaáa heldur en vestan þeirra eða 21-23% samanborið við 14-15%.

    Minnihluti notenda hefur lent í óhappi

    Notkun rafhlaupahjóla hefur vaxið  hratt undanfarin ár og hefur í raun margfaldast. Borgarbúar eru enn að læra hvernig best sé að notfæra sér þennan nýja ferðamáta en notkun smáfarartækja eins og rafhlaupahjóla er einhver mesta samgöngubylting sem hefur orðið á Íslandi í seinni tíð.

    Minnihluti þeirra sem notar rafhlaupahjól hefur lent í óhappi á hjólinu eða 28% en við síðustu könnun var hlutfallið 12,5%. Í hvorugt skiptið var spurt hvenær óhappið varð. Því er ekki óeðlilegt að það fjölgi í hópnum sem hefur orðið fyrir óhappi þar sem bæði notendum hefur fjölgað og tímabilið er lengra. Aðspurð um síðasta skiptið sem viðkomandi lenti í óhappi segjast 10% þeirra hafa verið undir áhrifum áfengis. Til samanburðar voru um 8% slasaðra eða látinna í umferðarslysum árið 2021  undir áhrifum áfengis eða fíkniefna samkvæmt ársskýrslu Samgöngustofu.

    Verið að greina skráð umferðaróhöpp

    Reykjavíkurborg vinnur að greiningu á skráðum umferðaróhöppum þar sem rafhlauphjól koma við sögu til þess að læra af þeim óhöppum sem upplýsingar liggja fyrir um. Tilgangurinn er meðal annars að átta sig á hversu stórt vandamálið er og hvernig best er að bregðast við til að koma í veg fyrir eða draga verulega úr alvarleika þeirra slysa sem verða. Áætlað er að niðurstöður þeirrar greiningar liggi fyrir í upphafi næsta árs.

    Helstu punktar

    • Tæplega 35% Reykvíkinga nota rafhlaupahjól eitthvað en sambærilegt hlutfall fyrir tveimur árum var 19%.
    • 22% Reykvíkinga hafa prófað rafhlaupahjól en nota ekki og 43% hafa aldrei prófað.
    • Rúm 10% nota þau einu sinni í viku eða oftar, 13,9% nota þau einu sinni til þrisvar sinnum í mánuði og 10,8% nota rafhlaupahjól sjaldnar en einu sinni í mánuði.
    • Notkunin er meiri hjá yngstu aldurshópunum og er ekki mikill munur á 18-24 ára og 25-34 ára. Hlutfall notenda eykst mest milli mælinga  hjá yngsta hópnum en notkunin er hins vegar mest hjá aldurshópnum 25-34 ára.
    • Notendur eru flestir í Miðborg/Vesturbæ og Hlíðum/Laugardal en virkustu notendurnir eru í Miðborg/Vesturbæ.
    • Karlar nota rafhlaupahjól í meira mæli en konur.
    • Tæp 18% borgarbúa segja að það sé rafhlaupahjól á heimilinu, sex prósentustigum hærra en fyrir tveimur árum. Hlutfall þeirra sem eru með rafhlaupahjól á heimilinu er hærra í hverfunum austan Elliðaáa en vestan megin. Helmingur þeirra sem nota hlaupahjól einu sinni í viku eða oftar búa á heimili þar sem er rafhlaupahjól.
    • Slétt 45% Reykvíkinga hafa leigt rafhlaupahjól á Íslandi en sambærilegt hlutfall fyrir tveimur árum var 29%. Átta af hverjum 10 Reykvíkingum 18-34 ára hafa leigt hlaupahjól.
    • Tæplega 38% notenda rafhlaupahjóla segjast nota rafhlaupahjól allt árið.
    • Rúmlega 13% notenda rafhlaupahjóla segjast nota þau í nær allar/stóran hluta ferða sinna, tæp 9% í helming ferða sinna en 78% segjast nota þau í lítinn/nær engan hluta ferða sinna. Um 37% þeirra sem nota hjólin einu sinni í viku eða oftar segjast að nota þau í nær allar/stóran hluta ferða sinni.
    • 72% aðspurðra hafa aldrei lent í óhappi, en 28% hafa orðið fyrir óhappi.
    • Af þeim sem hafa lent í óhappi sögðu flestir það hafa verið vegna sleips yfirborðs, eða 28%, tæplega 24% lentu í óhappi á leið upp/niður kant en 22% vegna ójafns yfirborðs. Fleiri ástæður voru nefndar fyrir óhöppum þar með talið sögðust 10% hafa verið undir áhrifum áfengis.

    Könnunin var netkönnun og var framkvæmd á tímabilinu 16. september - 20. október 2022. Úrtakið náði til 3062 Reykvíkinga, 18 ára og eldri, og var þátttökuhlutfall 46,2% sem skilaði rúmlega 1400 svörum.