130 listamenn vilja sýna í D-sal Hafnarhússins 2019

Mannlíf Menning og listir

""

Listasafni Reykjavíkur hafa borist umsóknir frá yfir 130 listamönnum um þátttöku í D-salar röð Hafnarhússins árið 2019. Listamennirnir eru bæði íslenskir og erlendir.

Fjöldi umsókna er langt umfram væntingar og segir Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur að „þessi mikli fjöldi umsókna sýni fram á hve verkefnið sé þakklátt og hve mikil gróska sé í myndlistinni.“

Tilkynnt verður um val á listamönnunum við opnun næstu sýningar í D-sal, þann 13. október, þegar opnuð verður 34. D-salar sýningin með verkum listakonunnar Maríu Dalberg. Ráðgerðar eru fjórar sýningar í D-sal árið 2019 þannig að ljóst er að dómnefndinni er vandi á höndum.

Um miðjan júlí auglýsti Listasafn Reykjavíkur eftir umsóknum listamanna til að sýna í D-sal Hafnarhússins árið 2019. Frestur til að senda inn umsóknir rann út á miðnætti 31. ágúst sl. Þetta er nýtt fyrirkomulag á vali á listamönnum í sýningarröðina en markmið hennar er að gefa listamönnum með skamman feril að baki tækifæri til að beina athygli að listsköpun sinni.
Sýningarröðin í D-sal Hafnarhússins hóf göngu sína árið 2007 og þar hafa rúmlega þrjátíu listamenn sýnt verk sín. Á sýningunum eru kynntir til leiks listamenn sem hafa sterka og persónulega listræna sýn en hafa ekki áður haldið einkasýningu í opinberu safni. Með þátttöku í D-salarröðinni gefst listamönnum tækifæri til að kynnast af eigin raun þeim innviðum sem opinbert listasafn styðst við í starfsemi sinni. Um leið opnast gestum safnsins innsýn í nýjar stefnur og strauma í samtímalist.

Við val á listamönnum til þess að sýna í D-sal er gerð sú krafa að þeir hafi ekki áður haldið einkasýningu í opinberu listasafni en hafi tengsl við íslenskt listalíf í gegnum nám, sýningar og/eða búsetu á Íslandi. Sérskipuð dómnefnd velur úr umsóknum.